Fræðsluráð - 53
- Kl. 13:30 - 15:30
- Fjarfundur
- Fundur nr. 53
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Þorlákur Axel Jónsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Bryndís Björnsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Drífa Þórarinsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Hanna Dóra Markúsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirvaramaður foreldra leikskólabarna
- Jóhann Gunnarssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
Skólaþjónusta - staða
Málsnúmer 2020080898Gunnar Gíslason forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar Háskólans á Akureyri (MSHA) kom á fundinn og gerði grein fyrir verkefnum miðstöðvarinnar í grunn- og leikskólum Akureyrarbæjar á fyrri hluta ársins 2021.
Fræðsluráð vill koma á framfæri hrósi og þakklæti til starfsfólks MSHA fyrir góð störf í þágu skólastarfs á Akureyri þar sem fagmennska, hvatning og jákvæð samskipti ráða ríkjum í samvinnu við starfsfólk skólanna.
Stefnumótun í forvörnum
Málsnúmer 2017030584Kristinn Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs og Alfa Aradóttir deildarstjóri forvarna- og æskulýðsmála gerðu grein fyrir úttekt á forvarnamálum hjá Akureyrarbæ sem unnin var af RHA að beiðni samfélagssviðs.
Fylgiskjöl
Brekkuskóli - körfuboltavöllur
Málsnúmer 2021062016Lagt var fram erindi frá skólastjóra Brekkuskóla um að hafin verði uppsetning á nýjum körfuboltavelli á lóð skólans.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til gerðar fjárhagsáætlunar 2022-2025.
Sérúrræði í leikskólum - ósk um viðauka
Málsnúmer 2021080200Fyrir fundinum lá beiðni frá skólaþjónustu Akureyrarbæjar um viðbótarfjármagn vegna sérúrræða í leikskólum að upphæð kr. 15,6 milljónir en gengið er út frá aukningu um 5,5 stöðugildi síðustu 4 mánuði ársins.
Fræðsluráð samþykkir einróma að vísa erindinu til 2. umræðu í fræðsluráði mánudaginn 23. ágúst skv. verklagsreglum Akureyrarbæjar.