Íþróttaráð - 194
- Kl. 14:00 - 16:06
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 194
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonfundarritari
Umsókn um styrk til kaupa á tímatökubúnaði
Málsnúmer 2016070084Erindi ódagsett frá stjórnum Hjólreiðafélags Akureyrar og UFA Eyrarskokks þar sem óskað er eftir styrk frá Akureyarbæ til að kaupa tímatökubúnað.
Íþróttaráði líst vel á erindið og vísar því til gerðar fjárhagsáætlunar íþróttaráðs 2017.
Nökkvi félag siglingamanna á Akureyri - uppbyggingarsamningur 2014-2018
Málsnúmer 2014010269Erindi dagsett 11. ágúst 2016 frá Rúnari Þór Björnssyni formanni Nökkva þar sem óskað er eftir heimild til að kaupa fjóra nýja tveggja manna seglbáta í ár sem voru áætlaðir til innkaupa skamkvæmt uppbyggingarsamningi árið 2018.
Íþróttaráð samþykkir erindið og felur forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram.
Íþróttahús Laugargötu - breytingar á notkun aðildarfélaga ÍBA
Málsnúmer 2016080027Breytingar á nýtingu og notkun Íþróttahúss Laugargötu kynntar og hugmyndir að frekari breytingum kynntar og til umræðu.
Formanni og forstöðumanni íþróttamála falið að vinna málið áfram.
Fjárhagsáætlun 2017 - íþróttaráð
Málsnúmer 2016050293Umræða og vinna við fjárhagsáætlun 2017. Drög að gjaldskrá fyrir Hlíðarfjall veturinn 2016-2017 lögð fram. Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls mætti á fundinn undir þessum lið.
Íþróttaráð samþykkir drög að fjárhagsáætlun fyrir Hlíðarfjall veturinn 2016-2017 og vísar þeim til bæjarráðs.
Starfsáætlun íþróttaráðs 2015-2018
Málsnúmer 2014080084Umræður um starfsáætlun íþróttaráðs 2015-2018 með tilliti til komandi vetrar.