Bæjarráð - 3490
- Kl. 08:55 - 12:17
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3490
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Margrét Kristín Helgadóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirskrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Öldrunarþjónusta Akureyrarbæjar - rekstrarúttekt
Málsnúmer 2015090082Magnús Kristjánsson og Þorsteinn Þorsteinsson frá KPMG mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir skýrslu um úttekt á rekstri öldrunarþjónustu Akureyrarbæjar.
Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar tók þátt í fundinum í gegnum fundarsíma. Bæjarfulltrúarnir Njáll Trausti Friðbertsson, Ingibjörg Ólöf Isaksen, Eva Hrund Einarsdóttir og Silja Dögg Baldursdóttir sátu fundinn undir þessum lið.
Einnig sat Gunnlaugur Júlíusson sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga fundinn undir þessum lið.Bæjarráð vísar skýrslunni til umræðu í bæjarstjórn.
Fjármál sveitarfélaga
Málsnúmer 2015080137Gunnlaugur Júlíusson sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga fór yfir fjármál sveitarfélaga.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - 2015 - viðauki
Málsnúmer 2014060172Lagður fram viðauki nr. 7.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Álagning gjalda - fasteignagjöld 2016 - reglur um afslátt
Málsnúmer 2015110154Lögð fram tillaga að reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti 2016.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.