Velferðarráð - 1273
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1273
Nefndarmenn
- Erla Björg Guðmundsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Helga Guðrún Erlingsdóttirhjúkrunarforstjóri
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Öldrunarþjónusta - biðlistar 2016, 2017 og 2018
Málsnúmer 2016020149Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri Öldrunarheimila Akureyrar lagði fram yfirlit um fjölda einstaklinga sem metnir eru af færni- og heilsumatsnefnd í þörf fyrir dvalar- og hjúkrunarrými þann 1. mars 2018 ásamt upplýsingum um fjölda umsækjenda á biðlista eftir dagþjálfun.
ÖA - stefna og starfsemi
Málsnúmer 2013010214Kynntur var bæklingurinn "Einmanaleiki á meðal eldra fólks" sem gefinn er út af Öldrunarheimilum Akureyrar og skrifstofu öldrunar- og húsnæðismála hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Frumútgáfa á dönsku: Útgefandi Marselisborg Consulting. Þýtt og aðlagað fyrir íslenska útgáfu: Halldór S. Guðmundsson félagsráðgjafi og Berglind Magnúsdóttir sálfræðingur.
Fylgiskjöl
10 ára áætlun Akureyrarbæjar - velferðarsvið
Málsnúmer 2018030057Lögð fram til kynningar og umræðu drög að 10 ára áætlun fjölskyldusviðs, búsetusviðs og Öldrunarheimila Akureyrar.
Sérstakur húsnæðisstuðningur - reglur
Málsnúmer 2016120021Lagðar fyrir að nýju reglur um sérstakan húsnæðisstuðning, málið var áður á dagskrá velferðarráðs þann 21. febrúar sl.
Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi lagði fram minnisblað sitt dagsett 5. mars 2018.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning og þann kostnaðarauka sem í þeim felst fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Fjárhagserindi 2018 - áfrýjanir
Málsnúmer 2018010268Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Fatlað fólk - fjölbreyttari atvinnutækifæri, nýsköpun og frumkvöðlastarf
Málsnúmer 2018010149Lagður fram til kynningar samningur vegna nýsköpunarverkefnis á sviði atvinnumála fatlaðs fólks.
Þekkingardagur velferðarsviða og -stofnana
Málsnúmer 2018030063Lagt var til að haldinn verði "þekkingardagur" fyrir velferðarstofnanir Akureyrarkaupstaðar.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur haldið opna starfsdaga undir nafninu "þekkingardagur velferðarsviðs". Á þekkingardeginum hefur verið boðið upp á kynningar á verkefnum sem unnið er að á sviði velferðarmála, áhugaverða fyrirlestra auk sölu- og sýningarbása.Velferðarráð lýsir yfir áhuga á að haldinn verði "þekkingardagur" fyrir velferðarstofnanir Akureyrarkaupstaðar og felur sviðsstjórum að vinna að undirbúningi og setja fram tillögur að efni og tímasetningu.
Velferðarstefna 2014 - 2018
Málsnúmer 2015010191Kynntar breytingar sem orðið hafa á meginköflum velferðarstefnu í meðförum vinnuhóps, sbr. bókun ráðsins frá 1270. fundi þann 24. janúar sl.