Samfélags- og mannréttindaráð - 120
06.02.2013
Hlusta
- Kl. 17:00 - 19:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 120
Nefndarmenn
- Tryggvi Þór Gunnarssonvaraformaður
- Brynjar Davíðsson
- Heimir Haraldsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Regína Helgadóttir
- María Hólmfríður Marinósdóttiráheyrnarfulltrúi
- Friðbjörg J Sigurjónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Brynjar Davíðsson L-lista mætti í forföllum Hlínar Bolladóttur.
Kvennasmiðja - samningur við Starfsendurhæfingu Norðurlands
Málsnúmer 2008080086Rætt um stofnun vinnuhóps um áherslur í starfrækslu kvennasmiðju. Starfsendurhæfing Norðurlands hefur samkvæmt samningi við Akureyrarbæ rekið kvennasmiðju á undanförunum árum.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að setja á stofn vinnuhóp sem hefur það verkefni að ákveða áhersluþætti fyrir áframhaldandi starfrækslu kvennasmiðju. Ráðið tilnefnir Regínu Helgadóttur sem fulltrúa ráðsins í vinnuhópnum og óskar eftir tilnefningu frá félagsmálaráði og/eða fjölskyldudeild, Vinnumálastofnun og Starfsendurhæfingu Norðurlands. Framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar mun starfa með hópnum.Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti til fundar kl. 17:25.$line$
Ungmenna-Hús 2012
Málsnúmer 2012050032Teknar fyrir að nýju tillögur vinnuhóps um mótun framtíðarsýnar fyrir Ungmenna-Húsið.

Sumartómstundir barna
Málsnúmer 2011100055Undanfarin ár hefur samfélags- og mannréttindaráð samið við íþróttafélögin KA og Þór um rekstur leikja- og íþróttaskóla fyrir börn á sumrin. Rætt var um hugmyndir að breyttu fyrirkomulagi.

Samfélags- og mannréttindaráð óskar eftir samstarfi við íþróttaráð um útfærslu.