Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 853
24.02.2022
Hlusta
- Kl. 13:00 - 13:40
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 853
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Laxagata 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022020997Erindi dagsett 21. febrúar 2022 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Prashant Babubhai Patel sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 4 við Laxagötu. Fyrirhugað er að breyta mhl. 02 í 3 gistieiningar.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Stjörnugata 5 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu
Málsnúmer 2020120038Erindi dagsett 2. desember 2020 þar sem Birgir Ágústsson fyrir hönd Jóns Stefáns Hjaltalín Einarssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 5 við Stjörnugötu. Innkomnar nýjar teikningar eftir Rögnvald Harðarson 16. febrúar 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.