Stjórn Akureyrarstofu - 305
- Kl. 14:00 - 16:10
- Fundarherbergi á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 305
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2021
Málsnúmer 2020060900Samþykktur rammi fjárhagsáætlunar 2021 lagður fram til kynningar.
Iðnaðarsafnið á Akureyri
Málsnúmer 2004050105Í samstarfssamningi Iðnaðarsafnsins, Minjasafnsins og Akureyrarstofu sem gildir út októbermánuð er kveðið á um að samráðshópur meti árangur og lærdóm af samstarfinu. Minnisblað hópsins lagt fram.
Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir að fá kostnaðarmat á þá sviðsmynd sem rædd var á fundinum.
Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands
Málsnúmer 2011060107Lögð fram til kynningar skýrsla um stöðu Flugklasans Air 66N 1. apríl - 15. september 2020.
Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir að fá frekari upplýsingar varðandi verkefnið "Hinn hluti Íslands" sem unnið er af Íslandsstofu og ISAVIA og gengur út á markaðssetningu flugvallanna á Akureyri og Egilsstöðum.
Fylgiskjöl
Listasafnið á Akureyri - rekstur kaffihúss
Málsnúmer 2018010273Lagður fram til samþykktar viðauki við húsaleigusamning Kaffi & listar vegna reksturs kaffihúss í Listasafninu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir viðaukann.
Staða ferðaþjónustunnar á Norðurlandi v/ COVID-19
Málsnúmer 2020030608Lögð fram til kynningar samantekt á stöðu ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vegna COVID-19. Könnun gerð á vegum Markaðsstofu Norðurlands á tímabilinu 25. ágúst - 5. september 2020.
Fylgiskjöl
Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2020
Málsnúmer 2020040153Lagt fram til kynningar 8 mánaða rekstraryfirlit.
Fylgiskjöl
Samfélagssvið - starfsmannamál
Málsnúmer 2018110172Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir 2020
Málsnúmer 2020040527Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar MN frá 8. september 2020.
Fylgiskjöl
Fundargerðir MAk
Málsnúmer 2019110308Fundargerð stjórnar MAk nr. 121 frá 21. september 2020 lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2019-2020
Málsnúmer 2020020650Fundargerðir stjórnar SSNE frá 2. og 16. september 2020 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl