Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 873
- Kl. 13:00 - 13:45
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 873
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Katrín Rós Ívarsdóttirfundarritari
Dvergaholt 5-9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022050528Erindi dagsett 10. maí 2022 þar sem Haraldur S. Árnason sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 5 við Dvergaholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Gleráreyrar 1 (rými 49) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022070294Erindi dagsett 11. júlí 2022 þar sem Svava Björk Bragadóttir f.h. Eik Fasteignafélags ehf., sækir um niðurrif í rými nr. 49 á Glerártorgi. Fyrirhugað er að fjarlægja hluta af millipalli og rúllustiga ásamt því að fjarlægja stiga sem gengur upp á millipall, veggi umhverfis stiga og fjarlægja rými sem áður var nýtt sem skrifstofa. Meðfylgjandi er uppdráttur eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Eyrarlandsvegur 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2020060369Erindi dagsett 13. júlí 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Þorsteins Más Baldvinssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir einbýlishús á lóðinni nr. 31 við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.