Öldungaráð - 5
- Kl. 09:00 - 10:40
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 5
Nefndarmenn
- Helgi Snæbjarnarsonformaður
- Arnrún Halla Arnórsdóttir
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Sigríður Stefánsdóttirfulltrúi EBAK
- Halldór Gunnarssonfulltrúi EBAK
- Valgerður Jónsdóttirfulltrúi EBAK
- Eva Björg Guðmundsdóttirfulltrúi HSN
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Heimaþjónusta
Málsnúmer 2020010597Þórdís Rósa Sigurðardóttir verkefnastjóri í heimaþjónustu á búsetusviði mætti á fundinn. Til umræðu var heilsuefling fyrir eldri borgara.
Öldungaráð þakkar Þórdísi fyrir komuna á fundinn og fagnar þeim hugmyndum sem hún setti fram varðandi áherslu á aukna heilsueflingu fyrir eldri borgara.
Öldungaráð - ýmis mál
Málsnúmer 2019020301Til umræðu starfið á næstu mánuðum, starfshættir og ráð til að ná betri árangri og til að uppfylla lagaskyldur.
Einnig hvernig ráðið geti komið áfram eða náð einhverjum árangri í málum, án þess að til þeirra hafi verið veitt sérstökum fjármunum t.d. heilsuefling, samhæfing þjónustu og bætt upplýsingagjöf.Samþykkt að unnar verði starfsreglur fyrir ráðið með hliðsjón af nýjum reglum og samþykktum. Arnrún Halla mun gera drög að þessum reglum.
Aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara
Málsnúmer 2020010595Lagt er til að unnin verði sérstök aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara í samráði öldungaráðs og þeirra ráða og sviða/deilda sem koma að þjónustu við hópinn.
Öldungaráð leggur til við bæjarráð að skipaður verði vinnuhópur til að vinna aðgerðaáætlun um málefni eldri borgara. Markmiðið er að ná yfirsýn og upplýsingum á þjónustu ásamt því að gera stefnumótun til framtíðar.
Sameiginlegur fundur öldungaráðs og bæjarstjórnar
Málsnúmer 2020010596Samkvæmt samþykkt um öldungaráð skal bæjarstjórn funda einu sinni á ári með öldungaráði.
Til umræðu undirbúningur fyrir sameiginlegan fund með bæjarstjórn. Rætt um að fundurinn yrði haldinn í apríl/maí.
Punkturinn - færsla á starfsemi upp í Víðilund
Málsnúmer 2020010598Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs kynnti þá ákvörðun bæjarstjórnar að starfsemi Punktsins verði að hluta til færð upp í Víðilund.
Ráðstefna Öldrunarráðs Íslands 18. mars 2020
Málsnúmer 2020010601Öldrunarráð Íslands stendur fyrir ráðstefnu í Reykjavík þann 18. mars nk. Óskað er eftir því að öldungaráð Akureyrarbæjar tilnefni fulltrúa í pallborð.
Öldungaráð samþykkir að skipa Sigríði Stefánsdóttur sem fulltrúa sinn á ráðstefnunni.