Umhverfis- og mannvirkjaráð - 144
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 144
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Jana Salóme I. Jósepsdóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Sindri S. Kristjánssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
- Anton Bjarni Bjarkasonáheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
- Georg Fannar Haraldssonverkefnastjóri
Samningur um sjúkraflug - Sjúkratryggingar Íslands
Málsnúmer 2019020255Lagt fram minnisblað varðandi endurnýjun á samningum við Sjúkratryggingar Íslands um sjúkraflutninga.
Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð áréttar mikilvægi þess að faglega sé staðið að starfsemi sjúkraflutninga á landi og í lofti. Til að svo geti orðið er brýnt að ríkið fjármagni sinn hlut í verkefninu með viðunandi hætti og leggi fram þann búnað sem nauðsynlegur er.
Félagssvæði KA - stúka, félagsaðstaða og völlur
Málsnúmer 2022110164Lagt fram minnisblað dagsett 23. ágúst 2023 varðandi opnun verðfyrirspurnar vegna kaupa á girðingu á KA svæðinu. Eitt tilboð barst fyrir auglýstan tíma.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði í girðinguna.
Skautahöllin á Akureyri - viðhald á húsnæði
Málsnúmer 2022051058Staðan á framkvæmdum við félagsaðstöðu í Skautahöllinni á Akureyri kynnt.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Fjárfestingaráætlun 2024
Málsnúmer 2023050623Lagður fram til umræðu undirbúningur að eignfærsluáætlun vegna áranna 2024-2027.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda og Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sátu fundinn undir þessum lið.Nonnahagi - þjónustuíbúðir
Málsnúmer 2023020044Farið yfir stöðuna á undirbúningi við byggingu þjónustuíbúða í Nonnahaga.
Glerárdalur - stígagerð
Málsnúmer 2020050067Staða framkvæmda við stíg inn Glerárdal kynnt.
Sláttur á Akureyri 2022-2023
Málsnúmer 2022050181Lagt fram minnisblað varðandi framlenginu á samningum um slátt á Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samningana um eitt ár.
Beitarhólf í eigu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2021110971Lagt fram minnisblað varðandi uppsögn á leigu beitarhólfa í Skjaldarvík.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að segja upp samningi um beitarhólf í Skjaldarvík.
Fjárhagsáætlun 2024
Málsnúmer 2023081139Lögð fram húsaleiguáætlun fyrir árið 2024.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða húsaleiguáætlun.