Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 907
- Kl. 13:00 - 13:45
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 907
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Eyrún Halla Eyjólfsdóttirfundarritari
Hafnarstræti 80 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023030432Erindi dagsett 8. mars 2023 þar sem Oddur Kristján Finnbjarnarson fyrir hönd Pollsins ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir íbúðarhóteli á lóð nr. 80 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Odd Kristján Finnbjörnsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Sjafnargata 1A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023030460Erindi dagsett 9. mars 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Sjafnargötu ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir verslunar-, lager- og skrifstofuhúsnæði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Dalsgerði 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023030540Erindi dagsett 10. mars 2023 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Húsfélagsins Dalgsgerði 7 sækir um byggingaráform og bygginarleyfi fyrir endurnýjun á þaki. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Geirþrúðarhagi 5 - fyrirspurn um byggingaráform
Málsnúmer 2023030596Erindi dagsett 13. mars 2023 þar sem Ragnhildur Þorgeirsdóttir leggur inn fyrirspurn varðandi byggingu sólskála í Geirþrúðarhaga 5, íbúð 103. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Friðrik Friðriksson og samþykki nágranna.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.
Glerárgata 34 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild fyrir hjólageymslu
Málsnúmer 2022111340Erindi dagsett 24. nóvember 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd G34 fasteignir ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir hjólageymslu á lóð nr. 34 við Glerárgötu. Innkomnar nýjar teikningar 13. mars 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Gránufélagsgata 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023030434Erindi dagsett 8. mars 2023 þar sem Selló ehf./Lárus H List sækir um byggingaráform og byggingarleyfi / breytta skráningu á húsnæði úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði á lóð nr. 10 við Gránufélagsgötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.