Fræðsluráð - 17
- Kl. 13:30 - 15:30
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 17
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Þorlákur Axel Jónsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Eyrún Skúladóttirfulltrúi skólastjóra
- Jakobína Elín Áskelsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Jóhann Gunnarssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- María Aðalsteinsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- Ellý Dröfn Kristjánsdóttirfulltrúi leikskólakennara
- Hildur Lilja Jónsdóttirfulltrúi ungmennaráðs
Í skugga valdsins #metoo - kynning
Málsnúmer 2019090491Á fundi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar 17. september 2019 var samskiptasáttmáli kjörinna fulltrúa samþykktur.
Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi kom til fundarins, kynnti samskiptasáttmálann og svaraði fyrirspurnum.Fylgiskjöl
Brúum bilið - vinnuhópur
Málsnúmer 2018120163Formaður fræðsluráðs, Ingibjörg Ólöf Isaksen, kynnti drög að skýrslunni Brúum bilið.
Myndlistaskólinn á Akureyri - námskeið haustið 2019
Málsnúmer 2019090263Á fundi bæjarráðs þann 19. september 2019 var 1. lið fundargerðar viðtalstíma bæjarfulltrúa frá 12. september vísað til umsagnar í fræðsluráði og frístundaráði.
Helgi Vilberg Hermannsson og Soffía Sævarsdóttir ræddu myndlistakennslu á Akureyri og vildu heyra hugmyndir bæjarstjórnar um myndlistarnám barna og unglinga. Óska þau eftir aðkomu Akureyrarbæjar að rekstri Myndlistaskólans á Akureyri vegna námskeiða fyrir börn og unglinga.
Í skýrslu starfshóps um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi frá því í ágúst 2019 segir um listnám barna og ungmenna:
a) Á yfirstandandi ári verði gerðar tilraunir með aukið framboð í listnámi barna í tengslum við verkefnið „samfelldur skóladagur barna í 1.- 4. bekk“ sem nú er að fara af stað. Starfsmenn á fræðslusviði og samfélagssviði og ungmennaráð vinni með verkefnisstjóra samfellds vinnudags að undirbúningi og hugmyndavinnu um fyrirkomulag aukins framboðs á listnámi fyrir börn.Fræðsluráð styður ofangreinda tillögu og leggur til að fjármunum til listnáms barna og ungmenna verði varið í eflingu listnáms í verkefninu um samfelldan skóladag barna í 1.- 4. bekk.
Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2020-2023
Málsnúmer 2019070631Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar lagði fram og kynnti áætlun um breytingar á rekstri fræðslumála fyrir árin 2021-2023.
Búnaðarkaup vegna íþróttasalar/samkomusalar Glerárskóla
Málsnúmer 2019100098Vegna breytinga á íþróttarsal/samkomusal Glerárskóla er þörf á nýjum búnaði svo salurinn geti nýst til samkomuhalds.
Fræðsluráð samþykkir að millifærðar verði kr. 4.000.000 af kostnaðarstöð 1041700 yfir á Glerárskóla (kostnaðarst. 1042130). Við úthlutun vegna búnaðarkaupa 2020 verði horft til þess sem út af stendur.
Rekstur fræðslumála 2019
Málsnúmer 2019030196Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar kynnti stöðu rekstrar fræðslumála frá janúar fram í ágúst 2019.
Yfirlit um yfirvinnu stofnana á fræðslusviði
Málsnúmer 2018100120Yfirlit um yfirvinnu á fræðslusviði fyrir tímabilið frá janúar til september 2019 lagt fram til kynningar.