Velferðarráð - 1367
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1367
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Karl Liljendal Hólmgeirsson
- Alfa Dröfn Jóhannsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2023
Málsnúmer 2023010262Heimsókn í þjónustukjarnann í Þrastarlundi þar sem Kristinn Már Torfason forstöðumaður tók á móti velferðarráði og sýndi húsnæðið.
Velferðarráð - kynning á ferli fjárhagsáætlunargerðar 2024
Málsnúmer 2023040707Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanagerðar sat fundinn undir þessum lið og kynnti ferli fjárhagsaáætlunargerðar hjá Akureyrarbæ fyrir árið 2024.
Stuðningsþjónusta 2023
Málsnúmer 2023040737Lagt fram minnisblað dagsett 26. apríl 2023 um þá stöðu sem stuðningsþjónustan er í varðandi þjónustuna á komandi sumri.
Arnþrúður Eik Helgaóttir iðjuþjálfi sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð hefur þungar áhyggjur af þeirri stöðu sem er komin upp varðandi mönnunarvanda stuðningsþjónustu Akureyrarbæjar og sér fram á skerðingu á þjónustu í sumar vegna þess að Kristnes lokar og tvær deildir Heilsuverndar standa nú tómar þar sem nauðsynlegar endurbætur eru ekki hafnar. Velferðarráð skorar því á Heilbrigðisráðuneytið að bregðast við hið fyrsta.
Reglur velferðarsviðs um stuðningsþjónustu
Málsnúmer 2022090993Lagðar fram til samþykktar reglur um stuðningsþjónustu. Stutt er síðan reglurnar voru samþykktar og nú er um að ræða minniháttar breytingar.
Arnþrúður Eik Helgadóttir iðjuþjálfi sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir breytingar á reglum um stuðningsþjónustu fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarstjórnar.
Samræmd móttaka flóttafólks
Málsnúmer 2023021331Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 26. apríl 2023 um stöðu samræmdrar móttöku flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2023
Málsnúmer 2023011181Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit velferðarsviðs eftir fyrstu þrjá mánuði ársins.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.Alfa Dröfn Jóhannsdóttir B-lista vék af fundi 16:36.
Niðurstaða rekstrar í málaflokki fatlaðs fólks
Málsnúmer 2019110137Lagðar fram niðurstöður rekstrar í málaflokki fatlaðra 2018-2022.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024-2028
Málsnúmer 2023031911Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 26. apríl 2023. Þar er samantekt um þau verkefni í aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk sem snúa að sveitarfélögum sérstaklega.