Umhverfis- og mannvirkjaráð - 120
- Kl. 08:15 - 09:55
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 120
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Berglind Bergvinsdóttir
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
- Anton Bjarni Bjarkasonvara-áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Gjaldskrár UMSA 2022
Málsnúmer 2021081199Lagt fram minnisblað dagsett 19. maí 2022 varðandi endurskoðun á gjaldskrá nokkurra tækja á umhverfismiðstöð.
Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð og Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir hækkun á gjaldskrá nokkurra tækja á umhverfismiðstöð.
Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2021-2022
Málsnúmer 2021040823Lagt fram minnisblað dagsett 16. maí 2022 varðandi opnun tilboða í vinnuflokkabíl og dráttarvél fyrir umhverfismiðstöð.
Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð og Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar öllum tilboðum í dráttarvél og vinnuflokkabíl og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram.
Snjómokstur og hálkuvarnir - útboð 2019
Málsnúmer 2019010353Tekið fyrir ákvæði í snjómoksturssamningum frá árinu 2019 varðandi framlengingu á samningum um eitt ár.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samninga í snjómokstri um eitt ár.
Glerárskóli - endurbætur A-álmu
Málsnúmer 2022020337Tekin fyrir niðurstaða frá opnun tilboða dagsett 11. maí 2022 varðandi framkvæmdir við A-álmu Glerárskóla. Eitt tilboð barst og var það 157% af kostnaðaráætlun.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar tilboði í endurbætur og viðbyggingu á A-álmu Glerárskóla.
Oddeyrarskóli - lóð
Málsnúmer 2022042022Fyrirhugaðar framkvæmdir við lóð Oddeyrarskóla ræddar.
Glerárgil - zip lína
Málsnúmer 2021080749Lögð fram gögn varðandi verkefnið og framkvæmd þess.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur vel í verkefnið og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að gera samning við rekstraraðila til ákveðins tíma og setja skilyrði fyrir rekstri.
Laxagata 5
Málsnúmer 2022051060Lagt fram kauptilboð Akureyrarbæjar dagsett 19. maí 2022 varðandi kaup á Laxagötu 5, Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur vel í kauptilboðið og vísar því til afgreiðslu í bæjarráði.