Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 285
06.10.2016
Hlusta
- Kl. 19:15 - 20:45
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 285
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Eiríkur Jónsson
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Eiríkur Jónsson S-lista mætti í forföllum Helenar Þuríðar Karlsdóttur.[line]
Fjárhagsáætlun 2017 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2016080126Lögð fram drög að viðhaldsáætlun, nýframkvæmdaáætlun og starfsáætlun FA 2017.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista vék af fundi kl. 20:00 og tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir viðhalds- og rekstraráætlun ársins 2017 og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
Samgöngumiðstöð - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2016050294Lögð fram til kynningar þarfagreining fyrir samgöngumiðstöð á Akureyri dagsett 14. september 2016.
Fasteignir Akureyrarbæjar - vígslur nýframkvæmda
Málsnúmer 2016100026Rætt um tímasetningar vegna vígslu á íþróttahúsi Naustaskóla, nýju svelli í Skautahöllinni og nýju gervigrasi í Boganum.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að vígslurnar verði í nóvember nk.