Bæjarráð - 3447
- Kl. 09:00 - 12:38
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3447
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirskrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Tryggingar - útboð 2014
Málsnúmer 2015010232Lögð fram niðurstaða útboðs tryggingamála fyrir Akureyrarbæ.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri og Karl Guðmundsson innkaupastjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda VÍS.
Tónræktin - rekstur
Málsnúmer 2014030313Lögð fram til kynningar ársskýrsla Tónræktarinnar ehf fyrir haustönn 2014.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Vinabæir og erlend samskipti
Málsnúmer 2014090064Lögð fram tillaga að erindisbréfi vinnuhóps um erlend samskipti dagsett 27. janúar 2015.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að erindisbréfi vinnuhóps um erlend samskipti með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
Íbúalýðræði og gagnsæ stjórnsýsla
Málsnúmer 2015020002Lögð fram tillaga að erindisbréfi vinnuhóps um stefnumótun í íbúalýðræði og gagnsærri stjórnsýslu fyrir Akureyrarbæ dagsett 28. janúar 2015.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að erindisbréfi vinnuhóps um stefnumótun í íbúalýðræði og gagnsærri stjórnsýslu fyrir Akureyrarbæ með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
Samþykktir fastanefnda - félagsmálaráð
Málsnúmer 20130601447. liður í fundargerð félagsmálaráðs dagsett 21. janúar 2015:
Lagt var fram endurskoðað erindisbréf félagsmálaráðs dagsett 19. janúar 2015.
Félagsmálaráð fór yfir samþykktir ráðsins og samþykkti að breyta nafni ráðsins í velferðarráð. Samþykktin er send til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á samþykkt fyrir ráðið með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar samþykktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frumvarp til laga um Menntamálastofnun (heildarlög), 456. mál
Málsnúmer 2015010254Lagt fram erindi dagsett 28. janúar 2015 frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um Menntamálastofnun (heildarlög), 456. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 16. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0700.htmlBæjarráð mælist til þess við skólanefnd að hún veiti umsögn um frumvarpið telji hún ástæðu til.
Frumvarp til laga um grunnskóla (kæruleiðir, einkareknir skólar o.fl.), 426. mál
Málsnúmer 2015010261Lagt fram erindi dagsett 29. janúar 2015 frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um grunnskóla (kæruleiðir, einkareknir skólar o.fl.), 426. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 16. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0634.htmlBæjarráð mælist til þess við skólanefnd að hún veiti umsögn um frumvarpið telji hún ástæðu til.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerð
Málsnúmer 2014100184Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 29. janúar 2015.
Bæjarráð vísar 1., 2., 3. og 5. lið til framkvæmdadeildar og 4. lið til íþróttaráðs.
Hverfisnefnd Oddeyrar - fundargerðir 2015
Málsnúmer 2015010103Lögð fram fundargerð 57. fundar hverfisnefndar Oddeyrar dagsett 27. janúar 2015.
Fundargerðina má finna á vefslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/oddeyri/fundargerdirBæjarráð vísar 6. og 8. lið til skipulagsdeildar, 9. lið til framkvæmdadeildar, aðrir liðir fundargerðarinnar eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.
Hverfisnefnd Lunda- og Gerðahverfis - fundargerðir 2015
Málsnúmer 2015020006Lögð fram til kynningar fundargerð 52. fundar hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis dagsett 19. janúar 2015.
Fundargerðina má finna á vefslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/lunda-og-gerdahverfi/fundargerdir