Velferðarráð - 1288
- Kl. 14:00 - 16:17
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1288
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirforstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- María Sigurbjörg Stefánsdóttirfundarritari
Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur - heimsókn og kynning á starfsemi
Málsnúmer 2018100395Heimsókn á Plastiðjuna Bjarg-Iðjulund.
Svanborg Bobba Guðgeirsdóttir forstöðumaður PBI kynnti starfsemina.Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur - ósk um heimild til að ráðstafa tekjum til viðhalds
Málsnúmer 2018100396Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur er að afla meiri tekna en gert var ráð fyrir við gerð fjárhagsáætlunar 2018. Óskað er eftir því við velferðarráð að PBI fái að nýta hluta tekna í viðhald og endurnýjun tækja og aðstöðu.
Svanborg Bobba Guðgeirsdóttir forstöðumaður PBI sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir samhljóða að PBI fái að nýta hluta tekna í viðhald og endurnýjun tækja og aðstöðu.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2018
Málsnúmer 2018040006Rekstraryfirlit fyrstu níu mánaða ársins 2018 lögð fram til kynningar.
Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.Grófin geðverndarmiðstöð - styrkbeiðni til velferðarráðs
Málsnúmer 2018090313Erindi dagsett 19. september 2018 frá Grófinni geðverndarmiðstöð með beiðni um fjárstuðning til að standa straum af rekstrarkostnaði.
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir vakti athygli á hugsanlegu vanhæfi sínu og óskaði eftir að víkja af fundi.
Velferðarráð samþykkir og vék Gunnfríður af fundi kl. 15:55.
Velferðarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni að svo stöddu.
Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að ræða við stjórn Grófarinnar um samvinnu félagsþjónustu og Grófarinnar um þjónustu.