Umhverfis- og mannvirkjaráð - 5
- Kl. 08:15 - 10:27
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 5
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Guðný Skúladóttirfundarritari
Reiðleiðir í landi Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2017020055Tekin fyrir að nýju tillaga um nýja reiðleið sem samþykkt var á 4. fundi umhverfis- og mannvirkjaráðs. Samþykkt var reiðleið B samkvæmt framlögðum teikningum en lagt er til að leið A verði samþykkt.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir leið JVi rauðu leiðina samkvæmt fyrirliggjandi teikningum.
Yfirborðsmerking gatna 2016-2017
Málsnúmer 2016010146Lagt fram minnisblað dagsett 27. febrúar 2017 þar sem lagt er til að nýtt verði framlengingarákvæði samnings við Vegmálun ehf til eins árs.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir tillögu um framlengingu á samningi við Vegmálun ehf til eins árs.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu.Gatnasópun - samningur við Hreinsitækni ehf
Málsnúmer 2017020165Lagt er til að samningur við Hreinsitækni ehf vegna gatnasópunar dagsettur 12. apríl 2016 verði framlengdur um eitt ár.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir tillögu um framlengingu á samningi Hreinsitækni ehf til eins árs.
Göngugata - lokun með rafmagnspolla
Málsnúmer 2017020166Lagt fyrir minnisblað dagsett 28. febrúar 2017 ásamt kostnaðaráætlun vegna rafmagnspolla til lokunar göngugötu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir upplýsingum um tæknilegar útfærslur og verklagsreglur um aðgengi og opnun göngugötunnar.
Stöðuskýrslur rekstrar 2017
Málsnúmer 2017020164Lagðar fram niðurstöður rekstrar í lok árs 2016.
Aðalheiður Magnúsdóttir skrifstofustjóri rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð fór yfir niðurstöðu rekstrar 2016.
LED götulýsingalampar - útboð
Málsnúmer 2016120069Lagt fram minnisblað dagsett 28. febrúar 2017 vegna útboðs á Led götulýsingu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við Vizulo.
Hrísey - deiliskipulag hafnarsvæðis
Málsnúmer 2017020167Lagt fram til kynningar nýtt deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið í Hrísey ásamt kostnaðarmati vegna breytinganna dagsett 24. janúar 2017.
Frestað.
Verkfundargerðir 2017
Málsnúmer 2017010343Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Nökkvi: 12. fundur verkefnisliðs dagsettur 16. febrúar 2017.
Sundlaug Akureyrar: 7. verkfundur dagsettur 15. febrúar 2017.
Snjómokstur og hálkuvarnir: 4. fundur aðgerðarhóps dagsettur 13. febrúar 2017.