Félagsmálaráð - 1165
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1165
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Jóhann Ásmundsson
- Sif Sigurðardóttir
- Guðlaug Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Valdís Anna Jónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Margrét Alfreðsdóttirfundarritari
Fjárhagserindi 2013 - áfrýjanir
Málsnúmer 2013010061Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Heilsugæslustöðin á Akureyri - jafnlaunaátak 2013
Málsnúmer 2013050194Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri heilsugæslustöðvarinnar kynnti stöðu jafnlaunaátaks gagnvart HAK.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - leiguverð
Málsnúmer 2012110070Tekin var fyrir umræða um leiguverð í leiguíbúðum Akureyrarbæjar en málið var á dagskrá 14. febrúar sl. Lagt var fram minnisblað Jóns Heiðars Daðasonar dags. 1. mars 2013 um tölfræðilega greiningu á leiguhækkun og sérstakar húsaleigubætur.

Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs að húsaleiga í leiguíbúðum Akureyrarbæjar verði hækkuð frá 1. september 2013 umfram vísitöluhækkun.

Prósentuhækkun á íbúðir er sem hér segir:

2ja herbergja 17,5%, 3ja herbergja 15,3%, 4ra herbergja 13,5% og 5 herbergja 11,5%.

Jafnframt verði frá sama tíma teknar upp sérstakar húsaleigubætur.