Skólanefnd - 12
- Kl. 13:30 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 12
Nefndarmenn
- Sigurveig Bergsteinsdóttirformaður
- Preben Jón Pétursson
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Logi Már Einarsson
- Þorvaldur Sigurðsson
- Gunnar Gíslason
- Björg Sigurvinsdóttir
Innritun í leikskóla 2010
Málsnúmer 2010040040Björg Sigurvinsdóttir leikskólafulltrúi, gerði grein fyrir stöðunni í innritun í leikskóla eins og hún lítur út núna. Ljóst er að enn vantar rými fyrir ríflega 30 börn svo hægt sé að mæta þörf fyrir börn að 18 mánaða aldri. Ástæðan fyrir þessu er að ríflega 50 börn á leikskólaaldri hafa flutt til bæjarins á fyrri hluta þessa árs. Þetta eru eldri börn sem ganga því fyrir þeim yngri.
<DIV><DIV>Lagt fram til kynningar.</DIV></DIV>
Handbók skólanefndar - 2010-2014
Málsnúmer 2010060093Á fundinum fengu nefndarmenn afhenta handbók skólanefndar, sem inniheldur þau grunngögn sem nauðsynleg eru fyrir nefndarmenn.
<DIV><DIV>Lagt til að fundir verði haldnir að jafnaði fyrsta og þriðja hvern mánudag í mánuði kl. 14.00. Fundarboð verður sent út rafrænt til aðal- og varamanna.</DIV></DIV>