Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 667
- Kl. 13:00 - 14:15
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 667
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonbyggingarfulltrúi
- Leifur Þorsteinsson
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Geirþrúðarhagi 3 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018020274Erindi dagsett 14. febrúar 2018 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Sigurgeirs Svavarssonar ehf. sækir um byggingarleyfi á lóð nr. 3 við Geirþrúðarhaga fyrir 5 íbúða raðhúsi á einni hæð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hafnarstræti 75 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2018010063Erindi dagsett 5. janúar 2018 þar sem Gunnlaugur Jónasson fyrir hönd Hótels Akureyrar ehf., kt. 640912-0220, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 75 við Hafnarstræti. Sótt er um að minnka húsið að sunnaverðu vegna nýs flóttagangs aðliggjandi húss. Innkomnar nýjar teikningar 16. febrúar 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Höfðahlíð 5 - breyting í tvær eignir
Málsnúmer 2017110272Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Klettabjarga ehf., kt. 490908-0990, leggur inn lagfærðar teikningar vegna eignaskipta í húsinu nr. 5 við Höfðahlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson innkomnar 21. febrúar 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Þórunnarstræti, dælustöð Norðurorku - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2018020299Erindi dagsett 16. febrúar 2018 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi dælustöðvar Norðurorku við Þórunnarstræti, vegna olíuknúinnar varaaflsvélar og nýja innkeyrsluhurð. Meðfylgjandi eru teikningar efir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Baldursnes 8 - fjölgun noteininga
Málsnúmer BN070315Erindi dagsett 14. febrúar 2018 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Valhallar ehf., kt. 670269-6639, sækir um byggingarleyfi fyrir skiptingu húss nr. 8 við Baldursnes í þrjár noteiningar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.