Umhverfis- og mannvirkjaráð - 45
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 45
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jóhann Jónsson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Jónas Vigfússonforstöðumaður Umhverfismiðstöðvar
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirforstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Loftgæðamál og aðgerðaráætlun í Akureyrarbæ 2018
Málsnúmer 2018110215Lagt fram minnisblað dagsett 21. nóvember 2018 vegna loftgæðamála í Akureyrarbæ og aðgerðaráætlana í loftgæðamálum.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Alfreð Schiöth frá mengunarvarnarsviði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfisátak Akureyrarbæjar 2018
Málsnúmer 2018040279Lagt fram minnisblað dagsett 21. nóvember 2018 vegna hreinsunarátaks í bæjarlandinu.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Alfreð Schiöth frá mengunarvarnarsviði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sátu fundinn undir þessum lið.Glerárdalur - lokun urðunarstaðar
Málsnúmer 2011070010Lagt fram bréf dagsett 7. nóvember 2018 frá Umhverfisstofnun vegna kröfu um úrbætur á frágangi og vöktun á urðunarstað í Glerárdal.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Alfreð Schiöth frá mengunarvarnarsviði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að hefja vöktun í samræmi við kröfur Umhverfisstofnunar.
Brýr yfir Eyjafjarðará
Málsnúmer 2017120110Lagt fram minnisblað dagsett 21. nóvember 2018 um tillögur að breytingum á reið- og gönguleiðum vegna tilkomu nauðsynlegs lendingarbúnaðar ISAVIA við Akureyrarflugvöll og áætlaðan kostnað þeirra.
Umhverfismiðstöð - tækjakaup 2018
Málsnúmer 2018050156Lagt fram minnisblað dagsett 19. nóvember 2018 vegna niðurstöðu útboðs á vinnuflokkabifreið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Kraftvéla ehf.
Umhverfismiðstöð - tækjakaup 2019
Málsnúmer 2018110214Lögð fram tillaga að tækjakaupum Umhverfismiðstöðvar ársins 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því að forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar leggi fram arðsemisreikninga tækja á Umhverfismiðstöð.
Jóhann Jónsson S-lista vék af fundi kl. 9:55.Lýsing á bílaplönum í íbúahverfum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2018110218Farið yfir lýsingu á bílaplönum í íbúahverfum Akureyrarbæjar.
Klettaborg 43 - íbúðakjarni
Málsnúmer 2017090011Lagt fram minnisblað dagsett 21. nóvember 2018 vegna opnunar tilboða í jarðvinnu og lögn.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir taka tilboði lægstbjóðanda í verkið frá G. Hjálmarssyni hf.
Ófyrirséð viðhald - útboð 2018
Málsnúmer 2018110216Lagt fram til kynningar iðngreinaútboð vegna ófyrirséðs viðhalds hjá UMSA.
Efniskaup UMSA - útboð 2018
Málsnúmer 2018110217Kynnt væntanlegt útboð á efniskaupum UMSA.
Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2019
Málsnúmer 2018080973Lagðir fram til kynningar viðaukar við fjárhagsáætlun ársins 2018 dagsettir 13. nóvember 2018. Einnig verklagsreglur um gerð viðauka hjá sveitarfélögum frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu dagsettar 7. nóvember 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða viðauka við framkvæmdayfirlit ársins 2018 og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði. Heildarniðurstaða er lækkun um 26,3 milljónir kr.
Stöðuskýrslur rekstrar UMSA 2018
Málsnúmer 2018050084Lögð fram stöðuskýrsla rekstrar dagsett 21. nóvember 2018 fyrir 10 mánaða stöðu.
Verkfundargerðir 2018
Málsnúmer 2018010235Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Glerárskóli leikskóli: 6.- 13. fundur verkefnisliðs dagsettir 13., 19. og 27. júní, 22. ágúst, 5. og 19. september, 17. október og 14. nóvember 2018.
Listasafn endurbætur: 22.- 33. verkfundur dagsettir 17. og 31. maí, 14. og 28. júní, 12., 19. og 26. júlí, 2., 10., 17. og 30. ágúst og 27. september 2018.
Naustahverfi 7. áfangi - Hagar: 8.- 19. verkfundur dagsettir 2., 16. og 30. maí, 13. júní, 4. og 18. júlí, 9. ágúst, 5. og 19. september, 3. og 24. október og 7. nóvember 2018.
Hlíðarskóli stækkun: 1.- 6. verkfundur dagsettir 25. september, 2. og 30. október, 6., 13. og 20. nóvember 2018.