Samfélags- og mannréttindaráð - 123
- Kl. 17:00 - 19:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 123
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Heimir Haraldsson
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Regína Helgadóttir
- Friðbjörg J Sigurjónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- María Hólmfríður Marinósdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2011-2015 - staðalímyndir kynjanna
Málsnúmer 2011100052Arnfríður Aðalsteinsdóttir verkefnastjóri kynnti lokaskýrslu samstarfsverkefnis Akureyrarbæjar og Jafnréttisstofu um jafnrétti kynjanna og staðalímyndir sem unnið var með í grunnskólum bæjarins í vetur.\nKristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu var gestur fundarins undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar Arnfríði og Kristínu fyrir góðar umræður og lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið. Ráðið vísar skýrslunni til umfjöllunar í skólanefnd og óskar eftir að Arnfríði verði boðið að kynna hana þar. Ein af grunnstoðum nýrrar aðalnámskrár fyrir grunnskólana er jafnrétti og því mikilvægt að skólarnir tileinki sér hugtök og vinnubrögð þessarar grunnstoðar. Kennurum þarf að standa til boða endurmenntun á sviði kynjafræði og kynjafræði þarf að vera skyldunámsgrein í kennaranámi.

Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti til fundar kl. 17:15.
Rannsókn - The knowledge of Icelandic by immigrants in Akureyri
Málsnúmer 2012070127Umræður um frekari greiningar á niðurstöðum rannsóknar sem gerð var meðal íbúa af erlendum uppruna og kynnt var á fundi samfélags- og mannréttindaráðs 6. mars sl.

Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs 2011-2014
Málsnúmer 2010090136Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs yfirfarin og endurskoðuð.

Súlur Björgunarsveitin á Akureyri - ósk um rekstrarstyrk
Málsnúmer 2012100020Erindi dags. 2. október 2012 þar sem óskað er eftir áframhaldandi samningi milli Akureyrarbæjar og Súlna Björgunarsveitar á Akureyri.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að gera samning til þriggja ára við björgunarsveitina Súlur og felur framkvæmdastjóra að ganga frá samningi.