Skipulagsnefnd - 232
- Kl. 08:00 - 10:04
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 232
Nefndarmenn
- Tryggvi Már Ingvarssonformaður
- Ólína Freysteinsdóttir
- Edward Hákon Huijbens
- Sigurjón Jóhannesson
- Hólmgeir Þorsteinssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Bjarki Jóhannessonskipulagsstjóri
- Anna Bragadóttirverkefnastjóri skipulagsmála
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Kynntar niðurstöður vinnufundar um aðalskipulagið með íbúum sem valdir voru með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Unnið var með styrkleika og veikleika einstakra hverfa og bæjarins í heild hvað varðar byggð, atvinnulíf, umhverfi, þjónustu, samgöngur og samfélag.
Farið yfir drög að greinargerð aðalskipulagsins.
Kafli 2 Skipulagstillaga: Farið var yfir ákvæði landnotkunarflokka þ.e. efnistöku- og efnislosunarsvæði, frístundabyggð, afþreyingar- og ferðamannasvæði, íþróttasvæði, kirkjugarða og grafreiti, skógræktar- og landgræðslusvæði, opin svæði, óbyggð svæði, vötn, ár og sjó, strandsvæði, vatnsbólasvæði, varúðarsvæði og landbúnaðarsvæði, minjavernd, friðlýst svæði, hverfisverndarsvæði, vegir, götur og stígar og veitur.
Kafli 3 Forsendur: Farið var yfir kafla 3.5.3 Landslag og náttúrufar:, m.a. loftgæði, vatnsgæði og mengun og náttúruvá.
Rætt um kafla um Hrísey og Grímsey og stöðu þeirra í aðalskipulaginu.Umræður. Frestað.