Skólanefnd - 17
17.10.2016
Hlusta
- Kl. 13:30 - 15:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 17
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Hanna Dögg Maronsdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Áshildur Hlín Valtýsdóttir Æ-lista mætti í forföllum Prebens Jóns Péturssonar.[line]Ingunn Högnadóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna boðaði forföll.[line]
Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Málsnúmer 2014110138Laufey Petrea Magnúsdóttir nýr forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar Háskólans á Akureyri kom á fundinn og kynnti starfsemi miðstöðvarinnar.
Skólanefnd þakkar Laufeyju Petreu kærlega fyrir góða kynningu á starfsemi miðstöðvar skólaþróunar HA. Skólar Akureyrarbæjar eiga í margvíslegu og góðu samstarfi við miðstöð skólaþróunar um ýmis verkefni innan skólanna, bæði sem snúa að nemendum, stjórnendum og starfsfólki.
Rekstur fræðslumála 2016
Málsnúmer 2016030017Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir rekstur fræðslumála tímabilið janúar - ágúst 2016.
Fjárhagsáætlun fræðslumála 2017
Málsnúmer 2016080015Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir nýtt form starfsáætlunar ásamt greinargerð sem fylgir með vegna fjárhagsáætlunar 2017.