Samfélags- og mannréttindaráð - 119
- Kl. 17:00 - 19:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 119
Nefndarmenn
- Tryggvi Þór Gunnarssonvaraformaður
- Brynjar Davíðsson
- Heimir Haraldsson
- Jóhann Gunnar Sigmarsson
- Regína Helgadóttir
- Elías Gunnar Þorbjörnssonáheyrnarfulltrúi
- Friðbjörg J Sigurjónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Veitingastaðir - aldursmörk við sölu áfengis
Málsnúmer 2012121095Á fundi sínum 13. desember 2012 vísaði bæjarráð 3. lið í fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags 29. nóvember 2012 til samfélags- og mannréttindaráðs:\nVilhjálmur G. Kristjánsson, Vestursíðu 5, mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa.\nHann lýsti áhyggjum sínum með að aldurstakmörk við sölu áfengis virðast ekki alltaf virt á veitingastöðum bæjarins. Hann spyr hvort bærinn geti beitt sér í þeim málum. Hann kom á fundinn sem stjórnarmaður í Forma í Menntaskólanum á Akureyri.\n\nDaníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn var gestur fundarins undir þessum lið og upplýsti um vinnubrögð lögreglunnar við eftirlit á vínveitingastöðum.\n

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar Daníel fyrir komuna. Ráðið vill taka fram að Sýslumannsembættið á Akureyri gefur út áfengisveitingaleyfi og Akureyrarbær er einungis umsagnaraðili.

Ungmenna-Hús 2012
Málsnúmer 2012050032Á fundi sínum 9. maí 2012 skipaði samfélags- og mannréttindaráð vinnuhóp um mótun framtíðarsýnar fyrir Ungmenna-Húsið. Tillögur hópsins voru lagðar fram.\nKristján Bergmann Tómasson umsjónarmaður Ungmenna-Húss sat fundinn undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar Kristjáni fyrir komuna og telur brýnt að styðja enn betur við starfsemi Ungmenna-Hússins.

Styrkveitingar samfélags- og mannréttindaráðs
Málsnúmer 2010110089Tekinn fyrir að nýju samningur sem til stendur að gera við Skátafélagið Klakk um styrk fyrir árin 2013-2014. Gera þarf breytingar á ákvæði um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir samninginn með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum. Jafnframt samþykkir ráðið að veita Skátafélaginu Klakki styrk að upphæð kr. 450.000 vegna ársins 2012.

Kvennasmiðja - samningur við Starfsendurhæfingu Norðurlands
Málsnúmer 2008080086Lögð fram til kynningar skýrsla Starfsendurhæfingar Norðurlands um kvennasmiðju á haustönn 2012.

Æskulýðs- og tómstundastarf - viðurkenningar
Málsnúmer 2012090258Lögð lokahönd á gerð reglna samfélags- og mannréttindaráðs um veitingu viðurkenninga fyrir framúrskarandi æskulýðs- og tómstundastarf.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir reglurnar. Heimir Haraldsson og Anna Hildur Guðmundsdóttir verða fulltrúar samfélags- og mannréttindaráðs í valnefnd og óskað er eftir tilnefningum frá ungmennaráði, félagsmálaráði og Félagi eldri borgara.