Bæjarráð - 3276
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3276
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hlín Bolladóttir
- Hermann Jón Tómasson
- Ólafur Jónsson
- Edward Hákon Huijbensáheyrnarfulltrúi
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Helgi Vilberg Hermannssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Rekstur - staða mála - embættismenn
Málsnúmer 2011050032Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar, Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur og Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda eftir fyrstu mánuði ársins.

Bæjarráð þakkar Guðríði, Helga Má og Leifi fyrir yfirferðina.

Kjaraviðræður - staða mála
Málsnúmer 2011060068Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála.

Vinnuskóli 2011 - laun
Málsnúmer 2011060070Umræða um laun í Vinnuskóla Akureyrarbæjar.

Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar - endurskoðun - skipun í vinnuhóp
Málsnúmer 20080800683. liður í fundargerð samfélags- og mannréttindaráðs dags. 1. júní 2011:\nUmræður um endurskoðun á Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar. Fjölskyldustefnan var fyrst samþykkt í bæjarstjórn vorið 2002. Endurskoðuð útgáfa var samþykkt haustið 2005.\nSamfélags- og mannréttindaráð leggur til við bæjarstjórn að skipaður verði vinnuhópur sem verði falið að meta hvort markmiðum Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar er nú þegar mætt í öðrum stefnum bæjarins eða hvort ástæða sé til að endurskoða stefnuna.

Bæjarráð felur samfélags- og mannréttindaráði að meta hvort markmiðum Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar er nú þegar mætt í öðrum stefnum bæjarins eða hvort ástæða sé til að endurskoða stefnuna og leggja tillögu fyrir bæjarstjórn.

Sérkennsla í leikskólum 2011
Málsnúmer 20110600132. liður í fundargerð skólanefndar dags. 8. júní 2011:\nFyrir fundinn var lagt yfirlit yfir stöðu mála í sérkennslu í leikskólum Akureyrarbæjar. Þar kemur fram að sérkennslubörnum hefur fjölgað á síðustu árum en stöðugildum til sérkennslu hefur ekki fjölgað um margra ára skeið. Því er þörf fyrir fjölgun stöðugilda í sérkennslu um 2 á ársgrundvelli svo hægt sé að halda uppi sambærilegu þjónustustigi og undanfarin ár.\nSkólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti umbeðna fjölgun stöðugilda og óskar eftir viðbótarfjármagni að upphæð kr. 8.600.000 í endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011.

Bæjarráð samþykkir ósk skólanefndar og vísar liðnum til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011.

Sérkennsla í grunnskólum 2011
Málsnúmer 20110600143. liður í fundargerð skólanefndar dags. 8. júní 2011:\nÁ fundinum var farið yfir stöðuna varðandi sérkennslu í grunnskólunum. Miðað við þá stöðu er þörf fyrir 2,5 stöðugildi til viðbótar vegna barna með miklar sérþarfir, sem eru að flytja í bæinn.\nSkólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti umbeðna fjölgun stöðugilda frá 1. ágúst 2011 og er óskað eftir viðbótarfjármagni að upphæð kr. 5.800.000 við endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011.

Bæjarráð samþykkir ósk skólanefndar og vísar liðnum til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011.

gottadgengi.is
Málsnúmer 20110501473. liður í fundargerð samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra dags. 31. maí 2011:\nKynning á vefnum gottadgengi.is og hugsanlegt samstarf um úttektir á fasteignum sveitarfélagsins.\nSamþykkt að leggja til við bæjarráð að gert verði ráð fyrir sérstökum lið í fjárhagsáætlun til að taka út aðgengi að byggingum sveitarfélagsins með það að markmiði að koma fleiri byggingum inn í aðgengismerkjakerfi gottadgengi.is.

Bæjarráð vísar liðnum til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.

Molta ehf - hlutafjáraukning
Málsnúmer 2011060065Fjármálastjóri lagði fram minnisblað dags. 22. júní 2011 varðandi hlutafjáraukningu í Moltu ehf.

Bæjarráð samþykkir að Akureyrarbær taki þátt í fyrirhugaðri hlutafjáraukningu félagsins fyrir allt að 25 milljónir króna.

Greið leið ehf - aðalfundur 2011
Málsnúmer 2011060061Erindi dags. 8. júní 2011 frá Greiðri leið ehf, þar sem boðað er til aðalfundar fimmtudaginn 30. júní nk. kl. 14:00 að Strandgötu 29, Akureyri. Einnig lagður fram ársreikingur Greiðrar leiðar ehf 2010.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.