Félagsmálaráð - 1114
- Kl. 14:00 - 17:00
- Heilsugæslustöðin - fundarsalur 4. hæð
- Fundur nr. 1114
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Jóhann Ásmundsson
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttir
- Margrét Guðjónsdóttir
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Fjárhagserindi 2010 - áfrýjanir
Málsnúmer 2010030115Ester Lára Magnúsdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun á afgreiðslu fjölskyldudeildar á umsókn um fjárhagsaðstoð. Áfrýjun og afgreiðsla hennar er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Afskriftir lána 2010
Málsnúmer 2010120024Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynnti tillögu að afskriftum lána í fjárhagsaðstoð að upphæð kr. 517.207.

Félagsmálaráð samþykkir afskriftirnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.

Félagsþjónusta - endurnýjun samninga við nágranna
Málsnúmer 2008020168Samningar Akureyrarbæjar við nágrannasveitarfélögin um ráðgjafarþjónustu renna út um nk. áramót. \nGuðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynntu stöðu mála.

Heilsugæslustöðin á Akureyri - þjónustusamningur 2010
Málsnúmer 2010050013Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti kröfulýsingu fyrir heilsugæslu vegna þjónustusamnings sem er í vinnslu milli Akureyrarbæjar og Sjúkratrygginga Íslands.

Kynning á starfsemi
Málsnúmer 2010120044Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti starfsemi og horfur í þjónustu heilsugæslustöðvarinnar.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Félagsleg liðveisla - reglur 2010
Málsnúmer 2010020013Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti tillögu, dags. 6. desember 2010, um breytingu á hámarksendurgreiðslu vegna kostnaðar liðveitanda. Núverandi hámark er kr. 3.000 á mánuði og hefur ekki hækkað frá árinu 2001. Lagt er til að frá 1. janúar 2011 hækki hámark endurgreidds kostnaðar í kr. 4.500 á mánuði. Að jafnaði skuli þó miða við að endurgreiddur kostnaður sé ekki hærri en kr. 400 á hvern liðveislutíma. Ávallt skal meta þörf á notkun þessarar heimildar þegar liðveislusamningur er gerður og einungis samþykkja kostnað þegar slíkt samræmist markmiðum og innihaldi liðveislunnar. Hámark endurgreiðslu skal koma fram í liðveislusamningi.

Félagsmálaráð samþykkir tillöguna.