Íþróttaráð - 185
- Kl. 14:00 - 15:46
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 185
Nefndarmenn
- Árni Óðinssonvaraformaður
- Birna Baldursdóttir
- Sigríður Valdís Bergvinsdóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Sundkort til afreksmanna
Málsnúmer 2012100159Lögð fram drög að verklags- og vinnureglum fyrir afhendingu sundkorta til afreksmanna á Akureyri.
Birna Baldursdóttir L-lista vék af fundi við afgreiðslu málsins.Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að verklags- og vinnureglum vegna sundstyrks íþróttaráðs til landsliðsmanna.
Frístundastyrkur
Málsnúmer 2006040018Úthlutunarreglur frístundastyrks Akureyrarbæjar endurskoðaðar.
Íþróttaráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
Akureyri á iði
Málsnúmer 2015040025Umræður um Akureyri á iði 2016.
Íþróttaráð felur Ingibjörgu Ólöfu Isaksen og Birnu Baldursdóttur ásamt forstöðumanni íþróttamála að vinna að undirbúningi "Akureyri á iði 2016" sem verður í maí nk.
Íþróttir og hreyfing í vetrarfríi
Málsnúmer 2016020029Tækifæri til íþrótta og hreyfingar í vetrarfríi grunnskóla á Akureyri 2016.
Íþróttaráð samþykkir að veita grunnskóla- og framhaldsskólanemendum frían aðgang í einn dag að Skíðastöðum Hlíðarfjalli og Sundlaugum Akureyrar í vetrarfríi skóla á Akureyri í febrúar 2016.
Íþróttaráð - önnur mál
Málsnúmer 2016020029Almennar umræður um íþróttastarfsemi og stefnur.