Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 499
- Kl. 14:00 - 15:00
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 499
Nefndarmenn
- Pétur Bolli Jóhannessonskipulagsstjóri
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Engimýri 2 - umsókn um stækkun bílastæðis
Málsnúmer 2014060198Erindi dagsett 25. júní 2014 þar sem Birkir Freyr Stefánsson sækir um stækkun á bílastæði í 8 metra á lóð nr. 2 við Engimýri. Meðfylgjandi er uppdráttur.
Skipulagsstjóri samþykkir 7 metra heildarstærð bílastæðis. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.
Geislagata 12 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014060009Erindi dagsett 2. júní 2014 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Verkmax ehf., kt. 610999-2129, sækir um byggingarleyfi fyrir Geislagötu 12. \nMeðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Jaðarstún 1-3 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014050117Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 1-3 við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar mótteknar 24. júní 2014.

Vegna mikils fjölda athugasemda og ósamræmis á milli grunn- og útlitsmynda fer skipulagsstjóri fram á að útlitsmyndir og sneiðingar verði tölvuteiknaðar. Erindinu er því frestað.

Jaðarstún 5-7 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014050118Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580 sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 5-7 við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar mótteknar 24. júní 2014 eftir Birgi Ágústsson.

Vegna mikils fjölda athugasemda og ósamræmis á milli grunn- og útlitsmynda fer skipulagsstjóri fram á að útlitsmyndir og sneiðingar verði tölvuteiknaðar. Erindinu er því frestað.

Frostagata 2b - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014060155Erindi dagsett 16. júní 2014 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Trésmiðju Ásgríms Magnússonar ehf., kt. 410604-3880, sækir um breytingar innanhúss við Frostagötu 2b. Meðfylgjandi eru teikningar dagsettar 27. júní 2014 eftir Harald S. Árnason.\nInnkomin umsögn Eldvarnareftirlits dagsett 18. júní 2014 sem tekur jákvætt í breytinguna svo fremi sem öllum skilyrðum er fram koma í leiðbeiningum Mannvirkjastofnunar nr. 9.5.4 um eina flóttaleið verði uppfylltar.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Tengir - framkvæmdaleyfi fyrir ljósleiðara
Málsnúmer 2014040120Erindi dagsett 1. júlí 2014 frá Gunnari Birni Þórhallssyni þar sem hann f.h. Tengis hf., kt. 660702-2880, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 14. maí 2014. Um er að ræða framkvæmdir við Hafnarstræti, Miðsíðu/Þverasíðu, Hólabraut, Grænugötu, Skógarlund, Stórholt/Lyngholt og Einholt/Hraunholt samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Meðfylgjandi er staðfesting á samráði við framkvæmdadeild og Norðurorku.

Skipulagsstjóri samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða.

Melasíða 3 - fyrirspurn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014060203Erindi dagsett 25. júní 2014 þar sem Bjarni Hjaltalín f.h. húsfélagsins Melasíðu 3, kt. 430791-2069, sendir inn fyrirspurn fyrir bílskúrum á lóð nr 3. við Melasíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Aðalstein V. Júlíusson.

Skipulagsstjóri bendir á að um skipulagsmála er að ræða sem þarf afgreiðslu skipulagsnefndar og kallar væntanlega á grenndarkynningu. Senda þarf inn erindi til skipulagsnefndar ef óskað er eftir því.