Umhverfis- og mannvirkjaráð - 169
- Kl. 08:15 - 11:03
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 169
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Bjarney Sigurðardóttirvaraformaður
- Þórhallur Harðarson
- Ingimar Eydal
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
- Heimir Sigurpáll Árnasonáheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Hlíðarfjall - vélaskemma
Málsnúmer 2022110166Lögð fram stöðuskýrsla vegna framkvæmda við vélageymslu í Hlíðarfjalli.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Klettaborg 43 - íbúðakjarni
Málsnúmer 2017090011Farið yfir stöðuna á leka sem var í Klettaborg 43.
Virkjun Fallorku - framkvæmdir innan samnings við Akureyrarbæ
Málsnúmer 2024090664Lagður fram samningur milli Akureyrarbæjar og Fallorku frá árinu 2013 varðandi framkvæmd við gerð virkjunar á Glerárdal og varðandi gerð og viðhald stíga á svæðinu samhliða því.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir samtali við Fallorku um samninginn.
Fylgiskjöl
Lóð undir geymslusvæði
Málsnúmer 2024060862Tekin fyrir fyrri beiðni umhverfis- og mannvirkjaráðs um að sækja um lóð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð telur að ekki sé þörf á því að fá umræddri lóð úthlutað þar sem verkefnið er enn á frumstigi og samþykkir að óska eftir því við skipulagsráð að lóðinni verði ekki úthlutað til annarra þar til kostnaðarmat og frekari ákvarðanir liggja fyrir.
Hilda Jana Gísladóttir S-lista og Ingimar Eydal B-lista sitja hjá.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025
Málsnúmer 2024050867Lagður fram fjárhagsrammi vegna fjárhagsáætlunargerðar vegna ársins 2025.
Fjárhagsáætlun UMSA - 2025
Málsnúmer 2024050867Lagðar framr gjaldskrár fyrir árið 2025 vegna umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar gjaldskrár fyrir sitt leyti fyrir árið 2025 og vísar þeim til bæjarráðs.
Fjárhagsáætlun UMSA - 2025
Málsnúmer 2024050867Lögð fram drög að rekstraráætlun allra deilda umhverfis- og mannvirkjasviðs og farið sérstaklega yfir fjárhagsáætlun fyrir Slökkvilið Akureyrar, Hlíðarfjall og leiguíbúðir Akureyrarbæjar.
Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar og Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli sátu fundinn undir þessum lið.