Atvinnumálanefnd - 25
23.11.2016
Hlusta
- Kl. 16:00 - 18:04
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 25
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonformaður
- Erla Björg Guðmundsdóttir
- Jóhann Jónsson
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Katrín Björg Ríkarðsdóttiraðstoðarmaður bæjarstjóra ritaði fundargerð
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir fyrrverandi verkefnastjóri atvinnumála var gestur fundarins.[line]
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Skipulagsnefnd samþykkti á fundi 5. október sl. að senda tillögu að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 til umsagnar innan bæjarkerfisins, þ.e. deilda, nefnda og ráða.
Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri mætti til fundarins undir þessum lið.Atvinnumálanefnd þakkar skipulagsstjóra fyrir kynninguna.
Frumkvöðlasetur á Akureyri
Málsnúmer 2015110232Farið yfir stöðu mála varðandi stofnun frumkvöðlaseturs á Akureyri.
Atvinnumálanefnd styður heilshugar við frumkvöðlastarfsemi á Akureyri og óskar eftir að bæjarráð ræði möguleikann á stofnun frumkvöðlaseturs.
Verkefni atvinnufulltrúa
Málsnúmer 2015070006Farið yfir stöðu verkefna sem voru á hendi verkefnastjóra atvinnumála.
Atvinnumálanefnd þakkar fyrrverandi verkefnastjóra atvinnumála kærlega fyrir að koma á fundinn.