Velferðarráð - 1297
- Kl. 14:00 - 16:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1297
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttirsviðsstjóri búsetusviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Lautin - rekstur og samningar 2019
Málsnúmer 2019010349Lögð fram ósk til velferðarráðs um að Akureyrarbær taki að fullu að sér rekstur Lautarinnar, athvarfs fyrir fólk með geðfatlanir.
Kristján Helgason forstöðumaður Geðverndarfélags Akureyrar og Brynjólfur Ingvarsson stjórnarformaður Lautarinnar kynntu málið og sátu fundinn undir þessum lið.
Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri fjölskylusviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir einróma að Akureyrarbær taki að sér að fullu rekstur Lautarinnar.
Reglur um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar 2019
Málsnúmer 2019030179Lögð fram til kynningar drög að endurskoðuðum reglum um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar.
Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu fjölskyldusviðs, Halldóra Hauksdóttir lögfræðingur fjölskyldusviðs og Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.Starfsmönnum falið að vinna reglurnar áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Búsetusvið - kynning á þjónustu
Málsnúmer 2019030223Kynning á þjónustu búsetusviðs við fólk með fjölþættan vanda og fólk með verulegar stuðningsþarfir.
Arnþrúður Eik Helgadóttir iðjuþjálfi á búsetusviði og Elfa Björk Gylfadóttir forstöðumaður heimaþjónustu búsetusviðs kynntu málið og sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð þakkar þeim Arnþrúði og Elfu fyrir kynninguna, fundarmenn eru betur upplýstir um heimaþjónustu.
Viðauki öryggisgæslu vegna yfirstjórnunarkostnaðar og þátttöku í rekstri sviðs
Málsnúmer 2019030206Lögð er fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun til að sýna rétta mynd af yfirstjórnunarkostnaði og þátttöku í rekstri sviðsins. Lagt til að kostnaður sé bókfærður á íbúðakjarna Hafnarstrætis. Lækkun er í viðauka við fjárhagsáætlunina hvað varðar þátttöku annarra kostnaðarstöðva upp á sömu krónutölu. Málið var síðast rætt á fundi 6. mars sl.
Velferðarráð samþykkir beiðni um viðauka og vísar málinu til bæjarráðs.
Viðauki vegna heimilis fyrir börn með verulegar þjónustuþarfir
Málsnúmer 2019010053Lögð er fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að flytja launakostnað milli kostnaðarstöðva þar sem þjónusta hefur ekki hafist í sérstöku úrræði fyrir fatlað fólk eins og áætlað var í fjárhagsáætlun.
Velferðarráð samþykkir beiðni um flutning launakostnaðar milli kostnaðarstöðva.
Nýbygging - öryggisgæsla
Málsnúmer 2019030202Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs lagði fram til kynningar beiðni um breytingu á fyrirhugaðri byggingu búsetukjarna í Nonnahaga.
Laufeyju Þórðardóttur settum sviðsstjóra búsetusviðs falið að gera ítarlega þarfa- og kostnaðargreiningu á verkefninu.
Búsetusvið - Kappar, tómstundaúrræði fyrir börn
Málsnúmer 2019030226Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs kynnti breytingar á fyrirhuguðu sumarúrræði fyrir börn.
Eftir samtal við forstöðumann heimaþjónustu Stoðar, Hlyn Má Erlingsson, þar sem fram komu frekari upplýsingar lagði sviðsstjóri til að sumarúrræðið Kappar verði að þessu sinni skipt upp í 2 hópa af eldri og yngri börnum sem fá 4 vikur hvor hópur. Í meðfylgjandi minnisblaði talar forstöðumaður um tvo 8 vikna hópa (16 vikur samtals) en telur að tvisvar sinnum 4 vikur uppfylli þarfir þeirra sem mest þurfi á úrræðinu að halda í sumar. Ljóst er að hópurinn fer stækkandi og aldursbilið breikkar þannig að gert verður ráð fyrir áframhaldandi þjónustu og aukinni þörf í gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2020. Það þarf að skipuleggja þá vinnu vandlega og gera ítarlega þarfagreiningu.