Velferðarráð - 1309
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1309
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Fjárhagsaðstoð 2019
Málsnúmer 2019030386Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð janúar - september 2019.
Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Anna Hildur Guðmundsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.
Jafnréttisstefna - skipan þróunarleiðtoga
Málsnúmer 2018110171Samkvæmt Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar skal hvert ráð velja sér þróunarleiðtoga jafnréttismála sem hefur m.a. það hlutverk að vera formlegur málsvari kynjasamþættingar í starfi viðkomandi ráðs.
Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Anna Hildur Guðmundsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir einróma að Heimir Haraldsson taki að sér hlutverk þróunarleiðtoga jafnréttismála velferðarráðs.
Áfangaheimili - undirbúningur
Málsnúmer 2019050635Tekin fyrir gögn er varða opnun áfangaheimilis á Akureyri.
Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Anna Hildur Guðmundsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að gengið verði til samninga við Hjálpræðisherinn á Akureyri um rekstur áfangaheimilis og leggur til að veitt verði 5,6 milljónum króna í verkefnið á árinu 2020. Málinu vísað til bæjarráðs.
Umsókn um styrk vegna breytinga á húsnæði fyrir fatlað barn
Málsnúmer 2019040485Breytingar á húsnæði vegna fatlaðs barns.
Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Málið er fært í trúnaðarbók og því vísað áfram til bæjarráðs.
Öldrunarþjónusta - biðlistar
Málsnúmer 2016020149Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA lagði fram yfirlit um fjölda einstaklinga sem metnir eru af færni- og heilsumatsnefnd í þörf fyrir dvalar- og hjúkrunarrými þann 1. október 2019 ásamt upplýsingum um fjölda umsækjenda á biðlista eftir dagþjálfun.
Fylgiskjöl
Endurbætur í aðaleldhúsi ÖA
Málsnúmer 2014030072Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA rakti undirbúning síðustu tveggja ára varðandi athugun á endurbótum á tækjum og búnaði í aðaleldhúsi ÖA og möguleikum þess að aðlaga framleiðsluferlið að aðferðum "Cook and Chill" (kokkað og kælt).
Málið hefur áður verið kynnt og rætt á fundum velferðarráðs.
Lagði framkvæmdastjóri ÖA fram og kynnti niðurstöður hagkvæmnisathugunar sem kynntar voru 14. október í samkomusal ÖA. Þar kynnti Róbert A. Croft, frá ráðgjafafyrirtækinu RC-associates International Foodservice Consultants, niðurstöður á hagkvæmnisathugun og tillögugerð sinni að skipulagi og tímaáætlun vegna þjálfunar og breytinga í eldhúsi ÖA. Leitast verður við að haga endurbótum þannig að samhliða verði hægt að halda uppi reglulegri starfsemi.
Framkvæmdastjóri ÖA lagði til að velferðarráð samþykkti að óska eftir aðkomu og vinnu umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar varðandi hönnun og kostnaðarútreikninga á þeim breytingum sem gera þarf á húsnæði eldhússins samkvæmt tillögu í hagkvæmnisúttektinni.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir tillögu Halldórs S. Guðmundssonar framkvæmdastjóra ÖA um að óska eftir aðkomu og vinnu umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar varðandi hönnun og kostnaðarútreikninga á þeim breytingum sem gera þarf á húsnæði eldhússins samkvæmt tillögu í hagkvæmnisúttektinni.
Fylgiskjöl
Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - ársskýrslur og rekstraryfirlit
Málsnúmer 2018030314Hermann Ingi Arason V-lista vék af fundi kl. 15:56.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA lagði fram drög að samantekt um rekstur ÖA fyrir allt árið 2018. Um er að ræða yfirlitsmyndir og skýringar um þróun nokkurra þátta í rekstri ÖA, líkt og áður hefur verið gefið út.