Kjarasamninganefnd - 4
- Kl. 11:00 - 12:40
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 4
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Guðrún Karitas Garðarsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirsviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Samfélagssvið - skipurit
Málsnúmer 2019090568Lögð fram tillaga að tímabundinni breytingu á skipuriti samfélagssviðs.
Kjarasamninganefnd samþykkir tímabundna breytingu á skipuriti samfélagssviðs.
Næturvaktir hjúkrunafræðinga á ÖA
Málsnúmer 2019090569Kynnt tilraunaverkefni um fyrirkomulag næturvakta hjúkrunarfræðinga á ÖA.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Starfsmat Verkfræðingafélags Íslands og Félags byggingafræðinga - framkvæmd 2019
Málsnúmer 2019090576Kynnt staða vinnu við innleiðingu starfsmats sveitarfélaga hjá Verkfræðingafélagi Íslands og Stéttarfélagi byggingafræðinga.
Kjarasamninganefnd lýsir vonbrigðum með að ekki skuli vera hægt að ganga frá starfsmati vegna skorts á upplýsingum frá einstaka sveitarfélögum.
Fylgiskjöl
Starfsmat Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga - framkvæmd 2019
Málsnúmer 2019090570Kynnt staða við innleiðingu starfsmats sveitarfélaga hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Kjarasamninganefnd lýsir yfir vonbrigðum með þann drátt sem orðið hefur á vinnslu gagna hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og leggur áherslu á að málið verði klárað sem fyrst.
Fylgiskjöl
Starfsmat aðildarfélaga BHM - framkvæmd 2019
Málsnúmer 2019020021Kynnt staða vinnu við innleiðingu starfsmats sveitarfélaga hjá aðildarfélögum BHM sem samið hafa um starfsmat.
Fylgiskjöl
Í skugga valdsins #metoo - kynning
Málsnúmer 2019090491Umfjöllun um endurskoðaðar siðareglur kjörinna fulltrúa Akureyrarbæjar, samskiptasáttmála kjörinna fulltrúa Akureyrarbæjar og leiðbeiningar um skráningu kjörinna fulltrúa hjá Akureyrarbæ á fjárhagslegum hagsmunum og trúnaðarstörfum sem samþykktar voru í bæjarstjórn 17. september 2019. Einnig kynntir verkferlar mála sem upp kunna að koma.
Að umfjöllun lokinni undirrituðu nefndarmenn yfirlýsingu um siðareglur og samskiptasáttmála.
Fylgiskjöl
- Minnisblað Metoo 08 2019.pdf
- Siðareglur kjörinna fulltrúa Akureyrarbæjar samþykktar í bæjarstjórn 17.09.19.pdf
- Samskiptasáttmáli kjörinna fulltrúa samþykktur í bæjarstjórn 17.09.19.pdf
- Leiðbeiningar um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa samþykktar í bæjarstjórn 17.09.19.pdf
- Ábyrgðarmörk_bæjarfulltrúar.pdf
- Ábyrgðarmörk_starfsfólk.pdf
- Áreiti.pdf
- óviðeigandi framkoma.pdf
- Skyldur.pdf
Tímabundið tilraunaverkefni á leikskólanum Pálmholti
Málsnúmer 2015090067Umfjöllun um framhald tímabundins tilraunaverkefnis um fyrirkomulag vinnutíma starfsmanna á Pálmholti.
Drífa Þórarinsdóttir skólastjóri leikskólans Pálmholts og Áslaug Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri Pálmholts sátu fundinn undir þessum lið.Kjarasamninganefnd samþykkir að framlengja verkefnið til 31. deember 2019.