Umhverfis- og mannvirkjaráð - 72
- Kl. 08:15 - 10:45
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 72
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonvaraformaður
- Andri Teitsson
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Hrafn Svavarssonrekstrarstjóri SVA og Ferliþjónustu
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
SVA - leiðakerfi 2020
Málsnúmer 2020020042Lagt fram minnisblað dagsett 5. febrúar 2020 vegna endurskoðunar á leiðakerfi SVA.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir því við bæjarráð að stofnaður verði launaður vinnuhópur um endurskoðun á leiðakerfinu.
Naustahverfi 7. áfangi - Hagar
Málsnúmer 2017080054Lögð fram greinargerð dagsett 24. janúar 2020 um verklok að hluta í gatnagerð, fráveitu-, neysluvatns-, raf- og fjarskiptalagnir í nýbyggingu gatna í 7. áfanga
Naustahverfis á Akureyri.Fylgiskjöl
Glerárskóli - endurbætur B álma
Málsnúmer 2019020224Lagt fram skilamat vegna framkvæmdanna dagsett 27. janúar 2020.
Fylgiskjöl
Íþróttahús Glerárskóla - endurbætur og gólf
Málsnúmer 2019010306Glerárskóli - endurbætur D álma
Málsnúmer 2020010605Lagt fram minnisblað dagsett 6. febrúar 2020 um stöðu verkefnisins.
Lundarskóli - loftgæði í kjallara B álmu
Málsnúmer 2019110520Farið yfir stöðuna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gerð verði úttekt á húsnæði skólans.
Árholt - endurbætur og breytingar
Málsnúmer 2019080197Lagt fram minnisblað dagsett 23. janúar 2020 vegna skoðunar á einangrun og hita í húsinu.
Afgreiðslu frestað.
Umhverfis- og mannvirkjasvið - starfsmannamál
Málsnúmer 2020020045Rætt um stöðu starfsmannamála á sviðinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að taka saman minnisblað um starfsmannamálin og leggja fram á næsta fundi ráðsins.
Glerárholt - kaup
Málsnúmer 2019110468Lagt fram gagntilboð dagsett 5. febrúar 2020 frá eiganda.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin á húsinu fyrir sitt leyti.
Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2020
Málsnúmer 2020020125Rætt um stöðu leiguíbúða Akureyrarbæjar.
Verkfundargerðir 2020
Málsnúmer 2020010277Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Eyvest brú: 1. og 2. verkfundur dagsettir 19. desember 2019 og 20. janúar 2020.
Klettaborg 43: 12.- 14. verkfundur dagsettir 28. nóvember og 12. desember 2019 og 9. janúar 2020.
Ráðhús 1. hæð: 1. verkfundur dagsettur 17. desember 2019.