Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 890
- Kl. 13:00 - 13:30
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 890
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Þverholt 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022110212Erindi dagsett 4. nóvember 2022 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Ingu Steinlaugar Hauksdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum utanhúss á húsi nr. 6 við Þverholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Hulduholt 4-12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022040007Erindi dagsett 11. nóvember 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Sigurgeirs Svavarssonar ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir raðhúsi á lóð nr. 4 við Hulduholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Tryggvabraut 8 - Krónan - (áður Glerárgata 38) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021040979Erindi dagsett 8. nóvember 2022 þar sem Guðmundur Oddur Víðisson fyrir hönd Festi fasteigna ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir húsi á lóð nr. 8 við Tryggvabraut. Innkomnar nýjar teikningar 15. nóvember 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.