Íþróttaráð - 157
02.10.2014
Hlusta
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 157
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Sigurjón Jónasson
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Ellert Örn Erlingssonfundarritari
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta 2014
Málsnúmer 2014020207Lagt fram að nýju til kynningar minnisblað dagsett 17. september 2014 frá framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar varðandi endurnýjun rennibrauta og endurbætur á sundlaugarsvæðinu við Sundlaug Akureyrar. Áður á dagskrá íþróttaráðs 25. september sl.
<DIV><DIV> </DIV></DIV>
Fimleikafélag Akureyrar - ósk um fjármagn til kaupa á nýrri yfirdýnu og dúk á fiberdýnu
Málsnúmer 2014090183Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 18. september 2014 frá Erlu Ormarsdóttur framkvæmdastjóra Fimleikafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir nýrri yfirdýnu og dúk yfir fiberdýnuna í fimleikaaðstöðunni í íþróttamiðstöðinni í Giljaskóla. Erindið var áður á dagskrá íþróttaráðs 25. september sl.
<DIV>Íþróttaráð óskar eftir fjármagni frá stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar til endurnýjunar búnaðar í íþróttamiðstöð Giljaskóla samanber erindi Fimleikafélags Akureyrar.</DIV>