Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 287
- Kl. 09:30 - 11:50
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 287
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jón Orri Guðjónsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Stöðuskýrslur FA 2016
Málsnúmer 2016040037Lögð fram stöðuskýrsla 5 fyrir stjórn FA dagsett 27. október 2016.
Fjárhagsáætlun 2017 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2016080126Unnið áfram að nýframkvæmdaáætlun áranna 2017-2019 hjá Fasteignum Akureyrarbæjar.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir þriggja ára áætlun án Samgöngumiðstöðvar.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista og Jón Orri Guðjónsson D-lista sátu hjá við afgreiðsluna.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir áætlun um Samgöngumiðstöð.
Jón Orri Guðjónsson D-lista sat hjá við afgreiðsluna.
Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista greiddi atkvæði á móti og óskar bókað:
Í samstarfssamningi meirihlutaflokkana í bæjarstjórn Akureyrar er kveðið á um byggingu umferðarmiðstöðvar á kjörtímabilinu. Samfylkingin telur mikilvægt að framkvæmdir dragist ekki mikið lengur. Brýnt er að koma samgöngumálum til og frá bænum sem og innanbæjar á einn stað. Uppbygging miðbæjarins er ein af meginástæðum þess að það þarf að huga að þessari framkvæmd. Einnig má benda á að gríðarleg slysahætta er við stoppustöð strætó við Hof og við henni verður að bregðast áður en alvarleg slys verða.
Halla Björk Reynisdóttir L-lista og Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista óska bókað:
Gert er ráð fyrir fjármagni í hönnun á árinu 2017 og að framkvæmdir hefjist árið 2018.
Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista óskar bókað:
Ítrekar að ráðast þurfi í framkvæmdir við umferðarmiðstöðina á næsta ári.Ófyrirséð viðhald - útboð 2014
Málsnúmer 2014110022Rætt um væntanlegt útboð á ófyrirséðu viðhaldi.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að leggja til við verktaka framlengingu á núverandi samningum um eitt ár.
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis
Málsnúmer 2014020207Lögð fram tilboð sem bárust í stálsmíði vegna framkvæmda við Sundlaugina. Alls bárust 3 tilboð í verkið:
Norðurstál 10.214.778 94,7%
Hamar 12.678.990 117,6%
Vélsmiðja Steindórs 9.141.000 84,8%
Kostnaðaráætlun 10.785.000Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Vélsmiðju Steindórs ehf.
Naustaskóli - íþróttahús
Málsnúmer 2015020029Lögð fram stöðuskýrsla 3 fyrir framkvæmdina dagsett 27. október 2016.
Boginn - endurnýjun á gervigrasi
Málsnúmer 2015120126Lögð fram stöðuskýrsla 1 fyrir framkvæmdina dagsett 27. október 2016.
Skautahöllin - nýtt svell
Málsnúmer 2015020134Lögð fram stöðuskýrsla 3 fyrir framkvæmdina dagsett 27. október 2016.
Verkfundargerðir FA 2016
Málsnúmer 2016010153Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Boginn gervigras: 5.- 12. fundur verkefnisliðs dagsettir 3. maí, 22. júní, 27. júlí, 23. og 31. ágúst, 6. september og 5. október 2016.
Listasafn: 13.- 16. fundur verkefnisliðs dagsettir 26. maí, 12. júlí, 30. ágúst og 4. september 2016.
Leiguíbúðir fyrir fatlað fólk: 1.- 5. fundur verkefnisliðs dagsettir 7. og 29. mars, 28. og 29. júní og 21. júlí 2016.
Naustaskóli íþróttahús: 17.- 21. verkfundur dagsettir 1., 15. og 27. apríl, 16. og 29. júní 2016.
Nökkvi: 6.- 7. fundur verkefnisliðs dagsettir 9. febrúar og 27. júní 2016.
Samgöngumiðstöð: 1.- 8. fundur verkefnisliðs dagsettir 26. febrúar, 14. og 20. apríl, 12. og 31. maí, 21. og 28. júní og 31. ágúst 2016.
Skautahöll verkfundir Áveitan ehf: 11. verkfundur dagsettur 8. júlí 2016.
Sundlaug Akureyrar rennibrautir verkefnislið: 11. fundur verkefnisliðs dagsettur 11. október 2016.
Sundlaug Akureyrar rennibrautir Altís ehf: 1. verkfundur dagsettur 18. október 2016.