Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 682
- Kl. 13:00 - 13:45
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 682
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Njarðarnes 12 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018030307Erindi dagsett 16. mars 2018 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir tveggja hæða steinsteyptu iðnaðar- og geymsluhúsnæði á lóð nr. 12 við Njarðarnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 25. júní 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hlíðargata 2 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2017050166Erindi dagsett 13. apríl 2018 þar sem Sigurður Hallgrímsson fyrir hönd Finns Víkingssonar sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum fyrir húsi nr. 2 við Hlíðargötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Hallgrímsson. Innkomnar nýjar teikningar 11. júní 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Margrétarhagi 4 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2017100110Erindi dagsett 15. júní 2018 þar sem Einar B. Jónsson fyrir hönd VAPPS ehf., kt. 460206-1890, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum er varðar glugga á norðurhlið húss nr. 4 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar Einars B. Jónssonar.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Margrétarhagi 6 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2017100116Erindi dagsett 15. júní 2018 þar sem Einar B. Jónsson fyrir hönd VAPPS ehf., kt. 460206-1890, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum, er varðar glugga á norðurhlið húss nr. 6 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar Einars B. Jónssonar.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Elísabetarhagi 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018030428Erindi dagsett 20. júní 2018 frá Tryggva Tryggvasyni sækir um takmarkað byggingaleyfi fyrir hönd B.E. Bygginga ehf., kt. 490398-2529 fyrir uppsteypu á undirstöðum, kjallaraveggjum og botnplötu á húsi nr. 2 við Elísabetarhaga.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Kotárgerði 12 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2018060525Erindi dagsett 25. júní 2018 þar sem Hákon Arnarson sækir um hámarks stækkun á bílastæði við hús sitt nr. 12 við Kotárgerði. Færa þarf ljósastaur og óskar umsækjandi eftir að hann verði færður samkvæmt meðfylgjandi mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir 6 metra breytt bílastæði með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum á kantsteini, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.
Giljaskóli íþróttamiðstöð - umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun anddyris
Málsnúmer 2018060095Erindi dagsett 7. júní 2018 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Akureyrarkaupstaðar, kt. 410169-6229, sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun anddyris til austurs í húsi Giljaskóla við Kiðagil. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Kaupvangsstræti 16 - starfsemi breytt í gistiskála
Málsnúmer 2018010390Erindi dagsett 26. janúar 2018 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Fasteigna ehf., kt. 581088-1409, sækir um leyfi fyrir breyttri notkun á 2. hæð húss nr. 16 við Kaupvangsstræti. Áætlað er að setja þar upp gistiskála. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Eyrarlandsvegur 28 - umsókn um byggingarleyfi fyrir aðkomu að stjörnuskoðun
Málsnúmer 2016060090Erindi dagsett 15. júní 2018 þar sem Gísli Jón Kristinsson fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands, kt. 540269-6459, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af stigauppgöngu að stjörnukíkishúsi á þaki húss nr. 28 við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Jón Kristinsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Háilundur 7 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018060350Erindi dagsett 15. júní 2018 þar sem Sigmundur Björnsson sækir um leyfi til niðurrifs á bílgeymslu og byggingarleyfi fyrir nýrri á sama grunni. Meðfylgjandi er gátlisti aðaluppdrátta og teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hlíðarfjall - umsókn byggingarleyfi fyrir stólalyftu, tveimur lyftuhúsum/stjórnstöð og spennistöð
Málsnúmer 2018030402Erindi dagsett 22. mars 2018 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Stólalyftu ehf., kt. 441217-0210, sækir um leyfi fyrir stólalyftu ásamt tveimur lyftuhúsum/stjórnstöð og spennistöð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 7. júní 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Viðburðir - götu- og torgsala - 2018
Málsnúmer 2017120017Erindi dagset 5. júní 2018 þar sem Marino Raffaele sækir um stöðuleyfi fyrir söluvagn í Hafnarstræti fyrir Lasagne and more ehf., kt. 430518-0380. Meðfylgjandi er samþykki Heilbrigðiseftirlits og mynd af húsi/vagni. Innkomnar nýjar teikningar.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Aðalstræti 19 - umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr
Málsnúmer 2018050073Erindi dagsett 7. maí 2018 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd HB fasteigna ehf., kt. 541015-1910, sækir um byggingarleyfi fyrir bílskúr á lóð nr. 19 við Aðalstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomin ný teikning 14. júní 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Eiðsvallagata 28 - beiðni um úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2018060293Erindi dagsett 13. júní 2018 þar sem Ólafur Auðunn Gylfason sækir um úrtöku á kantsteini við hús nr. 28 við Eiðsvallagötu. Meðfylgjandi er mynd.
Byggingarfulltrúi frestar erindinu og óskar eftir samþykki nágranna fyrir breytingunni.
Laufásgata 8 - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2016050032Erindi dagsett 13. júní 2018 þar sem Samúel Björnsson sækir um framlengingu á stöðuleyfi til eins árs fyrir Bátasmiðjuna sem stendur á horni Laufásgötu og Gránufélagsgötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 1. júlí 2019.
Kristjánshagi 4 - umsókn um frest
Málsnúmer 2016120155Erindi dagsett 14. júní 2018 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um framlengingu á framkvæmdafresti á úthlutaðri lóð sinni nr. 4 við Kristjánshaga til 15. ágúst 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.