Félagsmálaráð - 1182
- Kl. 14:00 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1182
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Sif Sigurðardóttir
- Valur Sæmundsson
- Dagbjört Elín Pálsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðlaug Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Soffía Lárusdóttirframkvæmdastjóri
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- framkvæmdastjóri
- Þráinn Brjánssonfundarritari
Lautin - athvarf fyrir fólk með geðraskanir
Málsnúmer 2012010115Staða mála kynnt vegna óska Akureyrarbæjar um viðræður við velferðarráðuneytið um rekstrarstyrk vegna þjónustunnar sem veitt er í Lautinni.

Lengd viðvera fatlaðra barna og ungmenna
Málsnúmer 2013110193Tekið fyrir erindi dags. 18. mars 2014 frá Önnu Einarsdóttur forstöðumanni skóla- og skammtímavistunar og Margréti Ríkarðsdóttur forstöðumanni Skógarlundar um heimild til að veita fötluðum nemendum Verkmenntaskólans, sem eru í lengdri viðveru, þjónustu í verkfalli framhaldsskólakennara.

Félagsmálaráð harmar þá ákvörðun undanþágunefndar í verkfalli félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara (FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum að koma ekki til móts við þarfir mikið fatlaðra nemenda. Félagsmálaráð felur starfsmönnum fjölskyldu- og búsetudeildar að finna leiðir í samvinnu við Verkmenntaskólann á Akureyri og foreldra ungmenna að mæta brýnum þörfum þeirra á meðan verkfall varir.

Fjárhagserindi 2014 - áfrýjanir
Málsnúmer 2014010041Selma Heimisdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjun og afgreiðsla hennar er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Endurbætur á vakt og skrifstofurými
Málsnúmer 2014030270Lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra dags. 24. mars 2014 varðandi endurbætur/breytingar á lyfjaherbergi, vakt og skrifstofurými.

Félagsmálaráð heimilar fyrir sitt leyti að leitað verði til Fasteigna Akureyrarbæjar með hönnun og kostnaðarútreikninga á fyrrnefndum breytingum núverandi húsnæðis í samráði við framkvæmdastjóra ÖA.

Öldrunarfræðafélag Íslands - aðalfundur 2014
Málsnúmer 2014030254Lagt fram til kynningar erindi dags. 10. mars 2014 frá Öldrunarfræðafélagi Íslands þar sem boðað er til aðalfundar félagsins fimmtudaginn 27. mars 2014 kl. 17:00 í Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, Reykjavík.

Endurbætur í aðaleldhúsi ÖA
Málsnúmer 2014030072Gera þarf endurbætur á aðstöðu til djúpsteikinga í aðaleldhúsi og er leitað heimildar félagsmálaráðs til að sækja um endurbæturnar til Fasteigna Akureyrarbæjar.

Félagsmálaráð heimilar fyrir sitt leyti að leitað verði til Fasteigna Akureyrarbæjar með hönnun og kostnaðarútreikninga á fyrrnefndum breytingum núverandi húsnæðis í samráði við framkvæmdastjóra ÖA.

Dagbjört Elín Pálsdóttir áheyrnarfulltrúi S-lista vék af fundi kl. 14:45 eftir lok umræðu um 6. lið.
Sjúkrahúsið á Akureyri - þjónusta öldrunarlækna
Málsnúmer 2013120021Framkvæmdastjóri ÖA kynnti stöðu mála varðandi endurskoðun á samningi um þjónustu sérfræðilækna og vaktlækna við ÖA.\nGerð grein fyrir stöðunni í samningaviðræðum SAk og ÖA.