Bæjarráð - 3330
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3330
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Hlín Bolladóttir
- Oddur Helgi Halldórsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Petrea Ósk Sigurðardóttir
- Anna Hildur Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Logi Már Einarssonáheyrnarfulltrúi
- Njáll Trausti Friðbertssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Rekstur - staða mála - embættismenn 2012
Málsnúmer 2012020046Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Dagný M. Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss, Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri, Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri, Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri og Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar mættu á fundinn og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda.

Akureyrarkaupstaður 150 ára árið 2012
Málsnúmer 2009090008Farið yfir hvernig til tókst með hátíðarhöldin á Afmælisvökunni.

Bæjarráð þakkar öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarhaldanna í tilefni 150 ára afmælis Akureyrarkaupstaðar.

Einnig þakkar bæjarráð bæjarbúum og gestum fyrir mikla og góða þátttöku í hátíðinni.

Bæjarráð þakkar allar kveðjur og gjafir sem sveitarfélaginu bárust í tilefni afmælisins.

Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2012
Málsnúmer 2012040165Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til júlí 2012.

Lánasjóður sveitarfélaga - lántaka 2012
Málsnúmer 2012020112Fjármálastjóri kynnti fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf að upphæð 125.000.000 kr.

Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða lántöku og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Skelfélagið - hluthafafundur 2012
Málsnúmer 2012090002Erindi dags. 1. september 2012 frá Jóhannesi Má Jóhannessyni f.h. stjórnar Skelfélagsins ehf, þar sem boðað er til hluthafafundar félagsins miðvikudaginn 19. september nk. í húsakynnum Íslenskra verðbréfa, Strandgötu 3 á Akureyri og hefst hann kl. 14:00.

Bæjarráð felur Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á hluthafafundinum.

Önnur mál
Málsnúmer 2012010085Þór/KA Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna 2012.\nTitillinn er sá fyrsti sem félagið vinnur í kvennaknattspyrnu í meistaraflokki og kemur hann á sjálfu 150. afmælisári Akureyrarkaupstaðar.\nBæjarráð óskar leikmönnum og forráðamönnum liðsins innilega til hamingju með árangurinn.