Framkvæmdaráð - 335
- Kl. 08:15 - 11:25
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 335
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
- Jón Birgir Gunnlaugssonverkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun 2017- framkvæmdadeild
Málsnúmer 2016080098Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir umræðum um fjárhagsáætlun slökkviliðsins. <br />Halla Björk Reynisdóttir formaður lýsti sig vanhæfa undir liðnum vörukaup slökkviliðsins og var það borið undir atkvæði og samþykkt. <br />Hún vék af fundi kl. 08:20 og mætti aftur kl. 08:55. <br />
Unnið að gerð fjárhagsáætlunar fyrir aðalsjóð og A og B fyrirtæki. Kynnt framkvæmdaáætlun og unnið að starfsáætlun.
Framkvæmdaráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun fyrir aðalsjóð og A og B fyrirtæki.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista og Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sátu hjá við afgreiðslu aðalsjóðs.Ingibjörg Ólöf Isaksen vék af fundi kl. 10:25.
Moldarlosunarvegur - gatnagerð og lagnir
Málsnúmer 2016070070Farið yfir niðurstöður funda með hestamönnum.
Jónas Vigfússon forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.Framkvæmdaráð frestar ákvörðun til næsta fundar.
Dýraverndunarfélagið Villikettir óskar eftir samstarfi við Akureyrarbæ
Málsnúmer 2016080066Tekið fyrir erindi frá Villiköttum dagsett 14. ágúst 2016.
Framkvæmdaráð getur ekki orðið við erindinu.