Umhverfisnefnd - 84
- Kl. 16:15 - 17:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 84
Nefndarmenn
- Hulda Stefánsdóttirformaður
- Petrea Ósk Sigurðardóttir
- Kristinn Frímann Árnason
- Jón Ingi Cæsarsson
- Ómar Ólafsson
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonfundarritari
Garðaúrgangur - gjaldskrá
Málsnúmer 2013080102Umræður um hugsanlega gjaldtöku á losun garðaúrgangs.

Umhverfisnefnd felur starfsmönnum að koma með nánari útfærslu á hugsanlegri gjaldtöku vegna garðaúrgangs.

Glerárdalur - óheimil efnistaka
Málsnúmer 2013080092Forstöðumaður umhverfismála/framkvæmdamiðstöðvar greindi frá þeirri óheimilu efnistöku sem átti sér stað á Glerárdal.

Umhverfisnefnd fordæmir þessa óleyfilegu efnistöku verktaka á Glerárdal og fer fram á að verkkaupi þ.e. Norðurorka sjái til að námunni verið lokað strax í samráði við framkvæmdadeild og frágangur verði með viðunandi hætti. Öll efnistaka í bæjarlandinu er bönnuð nema með sérstöku leyfi bæjaryfirvalda.

Hrísey - kerfill og aðrar óæskilegar plöntur í bæjarlandinu
Málsnúmer 2006080025Forstöðumaður umhverfismála/framkvæmdamiðstöðvar fór yfir stöðuna í baráttu bæjarins við útbreiðslu kerfils og lúpínu í bæjarlandinu.

Umhverfisnefnd þakkar kynninguna og bendir á nauðsyn þess að halda baráttunni áfram.

Miðbær Akureyrar, skipulags- og matslýsing
Málsnúmer 2013060045Tekið fyrir erindi frá skipulagsdeild dags. 13. ágúst 2013 þar sem óskað er umsagnar umhverfisnefndar á skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar í Miðbæ Akureyrar.

Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við skipulagslýsinguna.

Samgönguvika 2013
Málsnúmer 2013080093Rætt um hvort og þá hvernig nefndin vill standa að samgönguviku.

Umhverfisnefnd felur starfsmönnum að vinna að dagskrá samgönguviku seinnipart septembermánaðar.