Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 582
- Kl. 13:00 - 13:20
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 582
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonskipulagsstjóri
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Tryggvabraut 12 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016010197Erindi dagsett 16. febrúar 2016 þar sem Steingrímur Hannesson f.h. Hölds ehf., kt. 651174-0239, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu ofan á húsið við Tryggvabraut 12. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 7. apríl 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Jaðar - breytingar
Málsnúmer 2016030021Erindi dagsett 3. mars 2016 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Golfklúbbs Akureyrar, kt. 570169-7169, sækir um breytingar innanhúss í golfskála Jaðars. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson. Innkomnar teikningar 8. apríl 2016. Einnig er óskað eftir að víkja frá a-lið 1. mgr. 6.1.2. gr. í byggingarreglugerð.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Torfunef 7 - umsókn um tímabundið byggingarleyfi
Málsnúmer 2016020187Erindi dagsett 8. apríl 2016 þar sem Aðalheiður Atladóttir f.h. Hvalaskoðunar Akureyrar ehf. kt. 480116-0700, sækir um bráðabirgða byggingarleyfi við Torfunef 7. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Aðalheiði Atladóttur.
Skipulagsstjóri frestar erindinu. Ekki er fallist á staðsetningu á lóð nr. 7, en nákvæm staðsetning bráðabirgðahússins verði ákveðin í samráði við Hafnasamlag Norðurlands og framkvæmdadeild.
Austurvegur 12 - umsókn um leyfi fyrir breyttri notkun
Málsnúmer 2016030163Erindi dagsett 19. mars 2016 þar sem Birgir Snorrason og Kristín Petra Guðmudsdóttir sækja um breytta notkun á hluta hússins að Austurvegi 12 í Hrísey til að nýta fyrir kaffihús í flokki II. Meðfylgjandi er teikning eftir Þröst Sigurðsson. Innkomnar teikningar 12. apríl 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Njarðarnes 10 - umsókn um byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði
Málsnúmer BN070119Erindi dagsett 27. janúar 2016 þar sem Kári Magnússon f.h. N10 ehf., kt. 580612-0670, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Njarðarnesi 10. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 14. apríl 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Jaðarstún 2 - breytingar
Málsnúmer 2016040103Erindi dagsett 14. apríl 2016 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf. kt. 710594-2019, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningu á Jaðarstúni 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Jaðarstún 4 - breytingar
Málsnúmer 2016040104Erindi dagsett 14. apríl 2016 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf. kt. 710594-2019, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningu á Jaðarstúni 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.