Velferðarráð - 1251
- Kl. 14:00 - 15:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1251
Nefndarmenn
- Erla Björg Guðmundsdóttirformaður
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Róbert Freyr Jónsson
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs ritaði fundargerð
Starfshópar um velferðartækni
Málsnúmer 2017030598Greint frá starfi starfshópa ÖA, búsetusviðs og fjölskyldusviðs um velferðartækni og næstu skrefum.
Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri þjónustu á búsetusviði og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.
Haldinn hefur verið einn sameiginlegur fundur starfshópanna um verklag. Næsti sameiginlegi fundur er fyrirhugaður í lok maí. Starfshóparnir munu vinna drög að starfsáætlunum og áherslum fyrir fundinn. Huga þarf að siðferðilegum og praktískum ýmsum úrlausnarefnum. Komin er út skýrsla Connect-verkefnisins sem nýst getur sem leiðbeiningarrit um innleiðingu velferðartækni.
Karólína Gunnarsdóttir nefndi að nýta mætti samskiptamiðla til að ná til unglinga í tengslum við barnaverndarmál.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Málefni í vinnslu og gögn frá SFV
Málsnúmer 2015040217Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu frá 3. apríl sl. ásamt ársskýrslu 2016.
Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA fór stuttlega yfir efni fundargerðarinnar og ársskýrslunnar.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
ÖA - stefna og starfsemi
Málsnúmer 2013010214Lagt fram minnisblað dagsett 3. apríl sl. frá framkvæmdastjóra ÖA, Halldóri S. Guðmundssyni, varðandi skipan vinnuhóps til að þarfagreina viðhalds- og endurbótaverkefni í húsnæði ÖA í Austurbyggð. Í minnisblaðinu er bent á að ráðast þurfi í endurbætur til að heimilin verði í stakk búin til að takast á við fyrirsjáanleg verkefni á næstu árum. Vinnuhópnum verði einnig falið að setja fram tillögur um endurbóta- og viðhaldsáætlun húsnæðisins til næstu ára.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti skipan starfshóps um greiningu þarfa á viðhaldi og endurbótum á húsnæði ÖA í Austurbyggð.
Velferðarráð leggur til að hópurinn verði skipaður tveimur fulltrúum frá ÖA og tveimur fulltrúum umhverfis- og mannvirkjasviðs. Starfshópurinn leiti sér aðstoðar fagaðila eftir þörfum.
Velferðarráð leggur til að drög að viðhalds- og endurbótaáætlun liggi fyrir í byrjun september nk.ÖA - stefna og starfsemi
Málsnúmer 2013010214Framkvæmdastjóri ÖA, Halldór S. Guðmundsson, lagði fram samantekt og drög að ársskýrslu ÖA.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Gudmands Minde - húsaleigusamningur við Aflið
Málsnúmer 2016100139Lögð er fram millifærslubeiðni vegna húsaleigu fyrir Gudmands Minde, Aðalstræti 14. Velferðarráð styrkir Aflið um húsaleiguna en á síðasta ári fórst fyrir að færa fjárhagsáætlun vegna hússins á milli kostnaðarstöðva þ.e. frá samfélagssviði til fjölskyldusviðs.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldusviði sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti.
Furuvellir 1 - húsaleigusamningur - viðauki 2017
Málsnúmer 2017040091Lagður fram viðauki við húsaleigusamning Plastiðjunar Bjargs-Iðjulundar og Hölds ehf. Viðaukinn felur í sér breytingar á 2. og 3. gr. samningsins.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldusviði sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.
Undanþága frá reglum um leiguhúsnæði 2017 - áfrýjanir
Málsnúmer 2017040090Bókað í trúnaðarbók.
Bygging búsetukjarna fyrir fólk með miklar stuðningsþarfir
Málsnúmer 2017040087Verkefnislið vegna byggingar íbúða fyrir fatlað fólk hefur fjallað um þrjár tillögur umhverfis- og mannvirkjasviðs að lóðum fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk með mikla stuðningsþörf. Hópnum þykja tillögurnar allar vænlegar. Í ljósi þess að ætla má að þörf verði fyrir þrjá kjarna á næstu árum leggur hópurinn til að lóðirnar verði allar ætlaðar undir slíkar byggingar og nauðsynlegar breytingar gerðar á deiliskipulagi viðkomandi svæða.
Hópurinn leggur til að fyrsta búsetukjarnanum sem byggður verður verði valinn staður á lóð við Klettaborg. Óskað er álits velferðarráðs á umræddum staðsetningum.Velferðarráð tekur undir mat verkefnisliðs um byggingu íbúða fyrir fatlað fólk og leggur til að gerðar verði viðeigandi breytingar á deiliskipulagi viðkomandi svæða.
Jóni Hróa Finnssyni sviðsstjóra búsetusviðs falið að fylgja málinu eftir.Málþing um innleiðingu Sáttmála SÞ um réttindi fatlaðs fólks
Málsnúmer 2017040093Lagður fram til kynningar tölupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um málþing um innleiðingu Sáttmála SÞ um réttindi fatlaðs fólks í starfsemi sveitarfélaga sem haldið verður þriðjudaginn 16. maí kl. 13:00 til 17:00.
Velferðarstefna 2014 - 2018
Málsnúmer 2015010191Nýjasta útgáfa velferðarstefnuskjals lagt fram til kynningar og umræðu.
Erla Björg Guðmundsdóttir formaður velferðarráðs og Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs fóru yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á stefnuskjalinu í meðförum vinnuhóps og hugmynd að vinnulagi.
Velferðarráð lýsir sig hlynnt því vinnulagi sem lagt er upp með.