Stjórn Akureyrarstofu - 231
- Kl. 16:15 - 18:45
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 231
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Hildur Friðriksdóttir
- Þórhallur Jónsson
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs
Listasafn - endurbætur
Málsnúmer 2014010168Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs og Hlynur Hallsson forstöðumaður Listasafnsins mættu á fundinn undir þessum lið.
Lagt fram minniblað um breytingar á kostnaði v/tilboðs í framkvæmdir við Listasafn ásamt undirrituðum verksamningi.
Einnig var lögð fram endurskoðuð áætlun vegna framtíðarreksturs safnsins að loknum framkvæmdum.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Guðríði og Hlyni fyrir kynningu á málinu og fagnar því að framkvæmdir eru að fara í gang. Stjórnin samþykkir verksamninginn fyrir sitt leyti.
Þórhallur Jónsson fulltrúi D-lista greiddi atkvæði gegn samningnum.Miðbær - endurbætur
Málsnúmer 2017050008Á fundi umhverfis- og mannvirkjaráðs þann 5. maí sl. var samþykkt að vísa tillögum að upplyftingu á miðbænum til umræðu í stjórn Akureyrarstofu.
Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs kynnti málið.Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela deildarstjóra Akureyrarstofu að boða til fundar með hagsmunaaðilum miðbæjarins sem fyrst þar sem hugmyndirnar verða kynntar.
Fjárhagsáætlun 2017 - stjórn Akureyrarstofu
Málsnúmer 2016080056Endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir Listasafnið lögð fram.
Hlynur Hallsson forstöðumaður Listasafnsins fór yfir áætlunina.Stjórn Akureyrarstofu þakkar Hlyni kynninguna og samþykkir að taka málið fyrir að nýju á fundi í september nk.
Beiðni um endurnýjun sviðsbúnaðar og tækja í Samkomuhúsinu
Málsnúmer 2017050022Erindi dagsett 3. maí 2017 frá Þuríði Helgu Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra MAk og Jóni Páli Eyjólfssyni leikhússtjóra LA þar sem óskað er eftir endurnýjun á sviðsbúnaði og tækjum í Samkomuhúsinu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir kr. 20.000.000 úr áhalda- og búnaðarsjóði umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar til að endurnýja sviðsbúnað og tæki í Samkomuhúsinu.
Skáldahúsin á Akureyri - samningar og rekstur
Málsnúmer 2016100062Erindi tekið fyrir að nýju. Á fundi stjórnar Akureyrarstofu þann 23. mars sl. var deildarstjóra Akureyrarstofu falið að vinna málið áfram. Lokadrög að samningi við Minjasafnið um rekstur Skáldasafnanna á Akureyri lögð fram.
Stjórn Akureyrarstofu felur deildarstjóra Akureyrarstofu að fullgera samninginn út frá umræðu á fundinum og leggja fyrir næsta fund.
Athafna- og nýsköpunarverðlaun Akureyrarbæjar 2017
Málsnúmer 2017020089Lagður fram listi með tilnefningum til verðlaunanna.
Tekin ákvörðun um veitingu verðlaunanna sem tilkynnt verður um við formlega opnun á frumkvöðlasetri þann 18. maí nk. Ákveðið að veita tveimur fyrirtækjum á Akureyri athafna- og nýsköpunarverðlaun árið 2017.
Viðburðasjóður Hofs
Málsnúmer 2017040157Erindi tekið fyrir að nýju. Á fundi stjórnar Akureyrarstofu þann 27. apríl sl. var deildarstjóra Akureyrarstofu falið að vinna tillögu að vinnureglum. Lögð fram tillaga að vinnureglum fyrir Tónlistarsjóð Hofs.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fyrsta árið verði vinnureglur sjóðsins bundar við tónlistarflutning í Hofi og Samkomuhúsinu og auglýst verði eftir styrkumsóknum vegna starfsársins 2017-2018.