Skólanefnd - 1
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Sigurveig Bergsteinsdóttirformaður
- Preben Jón Pétursson
- Sigrún Björk Sigurðardóttir
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Logi Már Einarsson
- Jóhanna María Agnarsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Anna B. Arnarsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- Vilborg Þórarinsdóttirfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Grunnskólar - greining á kostnaði við rekstur
Málsnúmer 2010120089Fyrir fundinn var lögð fram til kynningar greinargerð sem óformlegur vinnuhópur mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman um greiningu á kostnaði við rekstur grunnskóla og samanburð við ríki OECD. \nÞá voru lögð fram til kynningar viðbrögð Kennarasambands Íslands við áðurnefndri greinargerð.

Skólastjóri Lundarskóla - námsleyfi
Málsnúmer 2011010039Þórhildur Helga Þorleifsdóttir skólastjóri Lundarskóla hefur fengið úthlutað 100% námslaunum frá Verkefna- og námsstyrkjasjóði Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands til að stunda 60 ects eininga nám sem lýkur með mastersgráðu í stjórnun. Því hefur hún óskað eftir leyfi frá starfi skólastjóra Lundarskóla skólaárið 2011-2012.

Fræðslustjóra er falið að koma með tillögu að afleysingu fyrir fund skólanefndar 7. mars 2011.

Skólaval 2011
Málsnúmer 2011010038Fyrir fundinn var lögð tillaga að fyrirkomulagi og dagsetningum varðandi skólaval grunnskóla árið 2011.

Skólanefnd samþykkir tillöguna og hvetur foreldra 6 ára barna til að mæta á auglýsta kynningarfundi.

Starfsáætlun skólanefndar 2011
Málsnúmer 2011010037Fyrir fundinn voru lagðar til kynningar og umræðu fyrstu tillögur að starfsáætlun skólanefndar fyrir árið 2011.