Velferðarráð - 1292
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1292
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Anna Marit Níelsdóttirforstöðumaður í félagsþjónustu
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2018
Málsnúmer 2018100118Lagt fram yfirlit um úthlutun leiguíbúða á árinu 2018 og stöðu biðlista um áramót.
Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Sérstakur húsnæðisstuðningur 2018
Málsnúmer 2018100153Lagt fram yfirlit yfir stöðu og útgjöld sérstaks húsnæðisstuðnings á árinu 2018.
Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi sat fundinn undir þessum liðSérstakur húsnæðisstuðningur - reglur
Málsnúmer 2016120021Lögð fram drög að breytingum á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.
Áður á dagsskrá 19. febrúar og 2. mars 2018.
Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir einróma framlagðar tillögur að breytingum.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2018
Málsnúmer 2018040006Rekstaryfirlit fyrstu 11 mánaða ársins 2018 lagt fram til kynningar.
Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA, Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs og Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs sátu fundinn undir þessum lið.ÖA - breyting á skammtímarými í dagþjálfunarrými
Málsnúmer 2018030309Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið og lagði fram bréf velferðarráðuneytisins dagsett 2. október 2018 sem barst framkvæmdastjóra 12. desember 2018, varðandi nýsköpunar- og þróunarverkefni á sviði öldrunarþjónustu á Akureyri, þar sem Sjúkratryggingum Íslands er falið að ganga frá samningi við ÖA um almenn og sértæk dagdvalarrými með lengdum opnunartíma.
Framkvæmdastjóri greindi einnig frá framvindu og undirbúningi að því að breytt starfsemi hefjist, sem áætlað er að verði um miðjan janúar 2019.
Áður á dagskrá 1. október og 18. desember 2018.
Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.Heimili fyrir börn með verulegar þjónustuþarfir
Málsnúmer 2019010053Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið og lagði fram beiðni um 30 m.kr. aukafjárveitingu vegna húsakaupa og óskar eftir aukningu á innri húsaleigu sem nemur kr. 2.125.000 á ársgrundvelli.
Málinu vísað áfram til seinni umræðu.