Umhverfis- og mannvirkjaráð - 8
- Kl. 08:15 - 10:40
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 8
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður tæknideildar
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Slökkvilið Akureyrar - gjaldskrá 2017
Málsnúmer 2016120137Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri mætti á fundinn og lagði fram gjaldskrá fyrir Slökkvilið Akureyrar fyrir árið 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
Slökkvilið - beiðni um kaup á bílum
Málsnúmer 2017040039Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri mætti á fundinn og lagði fram beiðni frá Slökkviliði Akureyrar um endurnýjun á tveimur þjónustubifreiðum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir bílakaup að upphæð 10 milljónir króna og felur slökkviliðsstjóra að vinna að málinu ásamt sviðsstjóra.
Búnaðarkaup fyrir skóla og leikskóla - óskir fræðslusviðs um aðkomu umhverfis- og mannvirkjasviðs að endurnýjun búnaðar
Málsnúmer 2017030585Lagt fram erindi dagsett 16. mars 2017 frá fræðsluráði þar sem óskað er eftir fjárveitingu til búnaðarkaupa í skólum og leikskólum á árinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir búnaðarkaup að upphæð 22 milljónir króna.
Endurnýjun áhalda og búnaðar í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2012090204Tekin fyrir beiðni frá frístundarráði um aðkomu að búnaðarkaupum fyrir leiksvæði í garði Sundlaugar Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir búnaðarkaup að upphæð 12 milljónir króna.
Beiðni um kaup á IKARUS strætisvagni - Vélaverkstæði Sigurðar Bjarnasonar ehf
Málsnúmer 2017040030Lagt fram minnisblað dagsett 5. apríl 2017 vegna beiðni frá Vélaverkstæði Sigurðar Bjarnasonar ehf í Grímsey um að kaupa gamla IKARUS strætisvagninn JH-497.
Umhverfis- og mannvirkjaráð getur ekki orðið við erindinu en samþykkir að auglýsa vagninn til sölu.
Umhverfis- og mannvirkjasvið - fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 2017030590Lagt fram minnisblað dagsett 29. mars 2017 um forgangsröðun á viðhaldsverkefnum gatna á árinu 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða forgangsröðun á viðhaldi malbikaðra gatna.
LED götulýsingarlampar - útboð
Málsnúmer 2016120069Víkingur Guðmundsson verkefnastjóri á umhverfis- og mannvirkjasviði mætti á fundinn og lagði fram kostnaðaráætlun og forgangsröðun vegna skiptingar á götulýsingu úr kvikasilfri yfir í LED lýsingu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða forgangsröðun á endurnýjun á götulýsingu.
Hrísey - deiliskipulag hafnarsvæðis
Málsnúmer 2017020167Lagt fram til kynningar nýtt deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið í Hrísey ásamt kostnaðarmati vegna breytinganna dagsett 24. janúar 2017.
Ferliþjónusta - gjaldskrá 2017
Málsnúmer 2017040022Lagt fram minnisblað dagsett 4. apríl 2017 vegna gjaldskrár ferliþjónustu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar breytingum á gjaldskrá til umsagnar í velferðarráði.
Almennar íbúðir - lög nr. 52/2016 - stofnframlag
Málsnúmer 2016060056Lögð fram til kynningar skýrslan Húsnæðisáætlun og stofnframlög dagsett 9. febrúar 2017 sem unnin var af verkefnahóp um aðkomu Akureyrarbæjar að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu.
Ljósvistarskipulag Akureyrar
Málsnúmer 2016080002Lögð fram skýrsla um ljósvistarskipulag fyrir Akureyrarbæ. Skýrslan er unnin af framkvæmdadeild og verkfræðistofunni Verkís.
Víkingur Guðmundsson verkefnastjóri á umhverfis- og mannvirkjasviði sat fundinn undir þessum lið.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings
Málsnúmer 2015030205Lagðar fram til kynningar niðurstöður verðkönnunar vegna ásetningar fargs á lóðina. Alls bárust tilboð frá fjórum verktökum í verkið ásamt 3 frávikstilboðum:
Finnur ehf kr. 12.803.700
Finnur ehf, frávikst. kr. 8.201.850
GV gröfur kr. 12.925.640
GV gröfur frávikst. 1 kr. 9.755.200
GV gröfur frávikst. 2 kr. 10.974.600
Skútaberg kr. 13.108.550
G.Hjálmarsson kr. 10.974.600Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við G.Hjálmarsson hf á grundvelli tilboðs.